„Ég var búinn að velta því lengi fyrir mér að setja á laggirnar námskeið fyrir efnilega leikstjórnendur og ákvað að kýla á það með góðum mönnum“, segir Jón Kr. Gíslason sem ásamt Fal Harðarsyni, Snorra Erni Arnaldssyni og Finni Stefánssyni ætlar að vera með leikstjórnendanámskeið fyrir 14 -18 ára drengi í Ásgarði dagana 27. -29. ágúst. Markmiðið er að auka skilning leikmanna á hlutverki leikstjórnandans og æfa ýmis atriði tengd leikstjórnendastöðunni.
„Á sl. árum hafa verið haldin námskeið fyrir hávaxna leikmenn en ég held ég geti fullyrt að aldrei áður hafi verið keyrt námskeið fyrir leikstjórnendur á Íslandi. Við stefnum að því að Ásinn verði árlegur viðburður og að í framtíðinni verði enginn leikstjórnandi maður með mönnum nema hann hafi mætt oftar en einu sinni á Ásinn“, segir Jón Kr. ennfremur“.
Jón Kr. er þriðji landsleikjahæsti leikmaður Íslands frá upphafi og fyrrum landsliðsþjálfari. Honum til halds og trausts eru Falur Harðarson, sem lék yfir 100 landsleiki á sínum ferli ásamt því að leika sem atvinnumaður í Finnlandi og í háskólaboltanum í Bandaríkjunum, en hann er núverandi þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Keflavík, Snorri Örn Arnaldsson unglingalandsliðsþjálfari, yfirþjálfari yngri flokka Stjörnunnar og aðstoðarþjálfari meistaraflokks Stjörnunnar og Finnur Stefánsson yfirþjálfari yngri flokka KR.
Nánari upplýsingar birtast hér á Karfan.is þegar nær dregur og ennfremur verður stofnuð Facebook síða á næstunni.




