HomeFréttirCamp Future Stars: Ómetanleg reynsla sem menn búa að alla ævi

Camp Future Stars: Ómetanleg reynsla sem menn búa að alla ævi

 
Örvar Þór Kristjánsson þjálfari Fjölnis í Iceland Express deild karla var einn af aðalþjálfurum, Camp Future Stars körfuboltabúðanna sem fóru fram í Tyrklandi, 17.-31. julí. Búðirnar voru ætlaðar efnilegum leikmönnum 13 – 16 ára gömlum og stóðu yfir í heilar 2 vikur. Búðirnar voru gríðarlega umfangsmiklar og fjölbreyttar enda alþjóðlegur blær yfir þessu öllu saman og starfsfólk víðsvegar að úr heiminum sem tók þátt. Karfan.is sló á þráðinn til Örvars og fékk að heyra aðeins í honum út af þessu verkefni.
,,Ég starfaði sem einn af 4 aðalþjálfurum við Camp Future Stars körfuboltabúðirnar í Uludag í Tyrklandi. Þetta eru gamalgrónar búðir en þær fyrstu voru haldnar árið 1989 og þetta fyrirtæki Future Stars hefur gríðarlega reynslu og þekkingu af slíkum búðum. Eigendur búðanna eru 3 tyrkneskir bræður sem allir hafa spilað og eru vel tengdir inn í tyrkneskan körfubolta. Fahri sem er elsti bróðirinn er stjórnarmaður í tyrkneska körfuboltasambandinu og þótti liðtækur leikmaður á árum áður. Þarna voru leikmenn frá aldrinum 13-16 ára í heilar 2 vikur (9-12 ára voru 2 vikurnar á undan) og umfang búðanna er gríðarlegt. Búðirnar eru haldnar í Uludag sem er skíðaþorp á veturna og í 1800m hæð yfir sjávarmáli! Æft var oftast útivið svo leikmenn urðu að venjast þunna loftinu og sólinni sterku. Leikmenn fá þarna topp æfingar, leiki, fyrirlestra og mjög mikla persónulega athygli enda er mikill fjöldi þjálfara í búðunum sem reyna eftir fremsta megni að kynnast hverjum og einum leikmanni eins mikið og hægt er. Lengd búðanna er talsverð en í 2 heilar vikur eru leikmenn saman nánast allar stundir sólahringsins og þurfa að læra að vinna með og virða hvor aðra,“ sagði Örvar en hvernig var uppsetningin á verkefninu?
 
,,Týpískur dagur hefst með morgunverði kl. 07:30-08:30 og svo er tekin góð æfing fyrir hádegismat (c.a 120-150 mín) og svo eftir hádegi svipað, jafnvel fyrirlestri hent inn líka. Á kvöldin er svo ýmislegt skemmtilegt brallað þannig að allur dagurinn er planaður fram að háttartíma (22:30-23:00). Einnig fengu leikmenn tækifæri á því að prófa sig í öðrum íþróttum og alls kyns athöfnum svona inná milli til þess að viðhalda ferskleikanum. Bogfimi og human FuBball var afar vinsæll og náttúrugangan stóð fyrir sínu. Niðurstaðan er sú að á þessum 2 vikum fá leikmenn að æfa við mjög góðar aðstæður (nokkupð framandi samt uppí fjöllum) með leikmönnum frá fjölda annara þjóða (starfsfólk og leikmenn voru frá c.a 40 löndum). Þarna læra menn að lifa og vinna saman þrátt fyrir tungumálaerfiðleika og æfa körfubolta undir handleiðslu topp þjálfara. Fjölbreytnin er mikil og þetta er ólíkt flestum öðrum körfuboltabúðum. Þjálfarar voru þarna t.d frá Sýrlandi, Bandaríkjunum, Tyrklandi, Trinidad, Palestínu og Íslandi. Einnig heimsótti leikmaður Tyrkneska landsliðsins og Fenerbache, Engin Atsur búðirnar og rabbaði mikið við leikmennina. Það gefur þessum krökkum mikið að sjá þarna fyrrum leikmann búðanna sem hefur náð langt, hann kláraði NC State háskólann og hefur svo átt afar farsælan feril í Evrópu. (Fyrir þá sem ekki vita þá enduðu Tyrkir í 2. sæti á HM í fyrra og deildin þar er ein sú stærsta í heiminum).“
 
Íslensk ungmenni tóku einnig þátt.
 
,,Frá Íslandi komu 4 leikmenn í búðirnar, þær systur Sara og Bríet frá Keflavík og Högni og Illugi frá KR. Þessir leikmenn stóðu sig afar vel og vöktu mikla athygli fyrir hegðun og kraft á körfuboltavellinum. Þau voru í hóp með leikmönnum t.d frá Tyrklandi, Montenegro, Palestínu og Íran. Reynslan úr þessum búðum er ekki síst menningarleg en það er gjörólíkur menningar- og körfuboltakúltúr hjá þessum krökkum sem gaman er svo sjást þróast hjá þeim saman á þessum 2 vikum. Mörg vináttutengsl myndast en fyrst og fremst fá leikmenn mikið út úr þessu körfuboltalega séð. Íslendingarnir fengu að spreyta sig í leik gegn sterku tyrknesku félagsliði í borginni Bursa. Þarna var spilað í rétt rúmlega 40 stiga hita og þrátt fyrir tap þá stóðu okkar leikmenn sig með miklum sóma,“ sagði Örvar sem ætlar sér aftur út á næsta ári.
 
,,Ég stefni á það að fara með fleiri íslenska leikmenn með mér á næsta ári því þetta er svo ómetanleg reynsla sem menn búa að alla ævi.“
 
Mynd: Sara og Bríet með Engin Atsur landsliðsmanni Tyrkja og leikmanns Fenerbache
Fréttir
- Auglýsing -