HomeFréttirAllt komið á fullt hjá Helenu í Slóvakíu

Allt komið á fullt hjá Helenu í Slóvakíu

 
Undirbúningurinn er hafinn hjá Helenu Sverrisdóttur og félögum í Good Angels Koszyce í Slóvaíku fyrir komandi átök á tímabilinu. Einhverjar eftirlegukindur eru ókomnar til liðsins úr sumrinu og eru aðeins þrír leikmenn mættir til liðsins sem skipa eiga hópinn í Evrópukeppninni þetta tímabilið. Það væsir ekki um Helenu og hinar tvær sem æft hafa með yngra liði félagsins undanfarið en Helena er svotil nýkomin út.
Mikið af leikmönnum Good Angels hafa verið í landsliðsverkefnum í sumar en þær skila sér hægt og bítandi segir á heimasíðu liðsins. Samkvæmt forseta liðsins er vilji fyrir því að bæta við einum bandarískum leikmanni til viðbótar en fyrir eru erlendu leikmennirnir Erin Lawless, Iveta Salkauske, Kayla Pedersen og vitaskuld Helena Sverrisdóttir.
 
Í lok ágústmánaðar fer liðið í æfingabúðir og um miðjan september fara fram tvö æfingamót hjá félaginu. Annað í þeirra heimaborg og hitt í Poprad. Deildarkeppnin í Slóvakíku hefst þann 28. september og rétt áður en Evrópukeppnin hefst mun Good Angels mæta ungverska liðinu Sopron sem komst í 16 liða úrslit Evrópukeppninnar á síðasta tímabili en töpuðu þar gegn Valencia sem hafnaði í 4. sæti.
 
Síðan Helena kom út á dögunum til Slóvakíu hefur verið æft tvisvar sinnum á dag og ljóst að spennandi vetur er framundan hjá Helenu sem heldur nú inn í sitt fyrsta ár í atvinnumennsku.
 
Fréttir
- Auglýsing -