HomeFréttirPrufukeyrslan hafin í körfuboltahöllinni í London

Prufukeyrslan hafin í körfuboltahöllinni í London

 
Ástralía, Kína, Króatía, Frakkland, Serbía og að sjálfsögðu heimamenn í Bretlandi eru nú staddir í prufukeyrslu í körfuboltahöllinni í London sem notuð verður á Ólympíuleikunum 2012. Um svokallað ,,Test Event“ er að ræða eða einskonar frumraun á húsnæðið og leikvöllinn.
Körfubolti er ein vinsælasta og stærsta keppnin á Ólympíuleikunum og hófst þessi prufukeyrsla í gær og lýkur henni 21. ágúst næstkomandi þar sem öll ofantalin lið munu mæta hverju öðru í hraðmóti.
 
Öll eiga þau það sameiginlegt að stefna á Ólympíuleikana en aðeins heimamenn í Bretlandi eru komnir með farseðilinn á leikana sem sú þjóð er heldur leikana. Króatar, Frakkar og Serbar freista þess að tryggja sín sæti til London með góðum árangri á EM sem hefst eftir örfáa daga í Litháen en Ástralir og Kínverjar fara í gegnum Oceania keppnina og Asíukeppnina í leit sinni að sætum í London.
 
Hér má finna leikjadaskránna fyrir ,,prufukeyrsluna“ á hraðmótinu í London. Ástralir og Kínverjar riðu á vaðið í gær þar sem Ástralir höfðu öruggan 71-43 sigur á Kínverjum. Peter Crawford gerði 15 stig fyrir Ástralíu í leiknum.
 
Fréttir
- Auglýsing -