Í sumar var í fyrsta sinn starfræktur Körfuboltaskóli Þórs. Þar fengu börn á aldrinum 9-19 ára tækifæri á að leggja stund á körfubolta yfir sumarið. Þetta kemur fram á www.thorsport.is
Markmið skólans var að gefa öllum tækifæri á að þjálfa grunnatriði körfuboltans. Tekin voru sérstaklega fyrir nokkur atriði eins og þreföld ógn, skot, knattrak, sendingar, vörn og fráköst. Allar æfingar fóru fram í íþróttahúsinu við Glerárskóla.
Í heildina mættu um 80 krakkar á æfingar en um 50 þeirra voru að æfa reglulega. Æfingar voru fjórum sinnum í viku í öllum aldurshópum, en æft var í fjórum aldurshópum. Skólinn var starfræktur í samtals tíu vikur í sumar en nú tekur við smá hlé hjá krökkunum áður en vetraræfingarnar byrja þann fyrsta september. Hápunkti sumarsins var náð um verslunarmannahelgina þegar tæplega 30 krakkar í fjórum liðum, einn þjálfari og heill hellingur af aðstoðarmönnum fóru austur á Egilsstaði á unglingalandsmót UMFÍ.
Þessi skemmtilega nýjung við körfuboltastarf Þórs er komið til að vera. Á síðustu árum hefur þróunin verið sú að félög á höfuðborgarsvæðinu hafa verið langt á undan hvað varðar aðstöðu fyrir iðkendur. Nú hefur verið tekið stórt skref í átt að því að sporna við þeirri þróun. Körfuboltinn á Akureyri er í mikilli sókn og gaman er að segja frá því að aldrei áður verða sendir jafn margir flokkar á Íslandsmót og nú í vetur. Er það bein afleiðing þeirrar miklu uppbyggingar sem átt hefur sér stað undir dyggri stjórn unglingaráðs körfuknattleiksdeildarinnar síðastliðin tvö ár.




