Hraði, góð skemmtun og þó nokkuð var um flott tilþrif þegar ÍR tók á móti On-Point liðinu frá Bandaríkjunum í Seljaskóla í dag. Þeir bandarísku höfðu nauman sigur, 91-104, og nutu fulltyngis nokkurra íslenskra leikmanna en þeirra á meðal var Finnur Magnússon leikmaður KR.
Snöggir og hittnir bakverðir On Point gerðu ÍR lífið leitt en leikar voru nokkuð jafnir en On Point hafði ávallt frumkvæðið. ÍR náði að saxa muninn niður jafnt og þétt í síðari hálfleik en On Point höfðu að lokum betur.
Georg Andersen og Jakob Árni Ísleifsson dæmdu leikinn í dag og komu vel undan sumri með góð tök á leiknum.
Mynd/ Sveinbjörn Claessen og félagar í ÍR töpuðu naumlega gegn On Point í dag.




