HomeFréttirIEX-karla: Uppgjör fyrstu umferðar

IEX-karla: Uppgjör fyrstu umferðar

Ungmennafélag Njarðvíkur er á toppi Iceland Express deildarinnar að lokinni fyrstu umferð eftir stóran sigur á nýliðum Vals. Að viðureign þessara liða frátalinni voru hörkuleikir í boði þessa fyrstu umferðina.

 Úrslit umferðarinnar:

Valur 63-92 Njarðvík
Tindastóll 91-105 Stjarnan
Haukar 89-93 Snæfell
Grindavík 86-80 Keflavík
KR 90-84 Þór Þorlákshöfn
Fjölnir 101-109 ÍR

Brandon Cotton leikmaður Snæfells var iðnastur við stigaskorunina þessa fyrstu umferð en hann setti 33 stig yfir Hafnfirðinga. Ekki langt undan var Nemanja Sovic sem gerði 32 stig gegn Fjölnismönnum.

Liðsfélagarnir Ægir Þór Steinarsson og Calvin O´Neal voru saman með 21 stoðsendingu gegn ÍR, Ægir 11 og O´Neal 10. Keflvíkingurinn Jarryd Cole tók flest fráköst eða 16 stykki og tveir komu honum næstir með 15, þeir Mike Ringgold hjá Þór Þorlákshöfn og Quincy Hankins –Cole hjá Snæfell.

Jarryd Cole var með hæsta framlagið og skilaði inn 32 framlagsstigum fyrir Keflvíkinga í naumu tapi gegn Grindavík. Fjölnismaðurinn Nathan Walkup var næstur með 31 stig og Fannar Freyr Helgason lét til sín taka á nýparketlögðu Síkinu í Skagafirði og skilaði 29 framlagsstigum.

Hr. Sekúnda einnig þekktur sem Páll Axel Vilbergsson var með bestu þriggja stiga nýtingu umferðarinnar, skellti niður 3 af 4 þristum sínum í sigrinum gegn Keflavík. Bakvörðurinn Árni Ragnarsson var með bestu teignýtinguna, skellti niður 11 af 12 skotum sínum í teignum gegn ÍR, 91,67% nýting hjá kappanum.

Sex leikmenn settu niður öll vítin sín í umferðinni og þeirra fremstur var vitanlega Fannar Freyr Helgason, 12 af 12, myndarleg frammistaða!

Stjörnumaðurinn Keith Cothran var fingralengstur ásamt þeim Maurice Miller og Justin Shouse, allir stálu þeir 4 boltum.

Þrír fá heiðurinn að Mutumbo umferðarinnar, Þröstur Leó Jóhannsson, Trausti Eiríksson og Sigurður Gunnar Þorsteinsson, allir með tvö varin skot í umferðinni.

Næsta umferð hefst annað kvöld og lýkur á mánudagskvöld, allir leikir kl. 19.15:

16. október
Keflavík-Tindastóll
Fjölnir-Grindavík
ÍR-Þór Þorlákshöfn

17. október
Stjarnan-Valur
Snæfell-KR
Njarðvík-Haukar

Fréttir
- Auglýsing -