Justin Shouse var stigahæstur í gærkvöldi þegar Stjarnan lagði nýliða Vals í Iceland Express deild karla. Justin Shouse var stigahæstur Garðbæinga með 27 stig og sagði kappinn fyrstu tvo leikina á tímabilinu hafa verið skemmtilega.
,,Við erum ánægðir með þessi fjögur stig svona í upphafi tímabilsins. Á síðustu leiktíð mættum við ekki nægilega grimmir inn í leiktíðina og huguðum ekki nægilega vel að allri aukavinnunni. Í ár ætlum við að gera þessa aukavinnu, þessi smáatriði betur og láta þau tala sínu máli. Það var ánægjulegt að fá sigur í hús en við erum enn að stilla okkar strengi, innleiða Keith inn í hópinn en þetta hefur verið gott og hópurinn nýtur þess að leika saman svo fyrstu tveir leikirnir hafa bara verið skemmtilegir.“
,,Það vantaði grimmd, þeir sem sáu síðasta leik hjá okkur sáu í kvöld að framfarirnar hjá liðinu hafa verið miklar,“ sagði Ágúst Björgvinsson þjálfari Vals eftir leikinn í Ásgarði. ,,Við vorum að spila gegn einu af bestu liðum deildarinnar, við náðum að stríða þeim en grimmdina vantaði og áræðni við að saxa niður forskotið þeirra,“ sagði Ágúst en fengu erlendu leikmennirnir einhverja hárþurrkumeðferð frá honum eftir fyrsta leikinn gegn Njarðvík?
,,Þess þurfti nú ekki mikið enda var frammistaða þeirra skömmustuleg í fyrsta leiknum svo þeir sáu um þetta sjálfir. Þeir eiga eftir að sanna sig og voru góðir gegn Stjörnunni miðað við fyrsta leikinn og ef þetta eru framfarirnar hjá okkur milli leikja þá styttist í fyrsta sigurleikinn.




