Önnur umferðin í Iceland Express deild kvenna hefst í kvöld með einum leik þar sem eigast við Snæfell og Haukar. Leikurinn fer fram í Stykkishólmi kl. 19.15.
Snæfell vann Val í fyrstu umferð deildarinnar á meðan Haukar fengu skell gegn Njarðvíkingum.
Þá eru fleiri leikir á dagskránni í dag, Laugdælir taka á móti Fram kl. 19.30 í 2. deild karla og fimm leikir eru á dagskrá í drengjaflokki.
Drengjaflokkur:
19.10: Stjarnan-Valur
20.00: FSu-Ármann
20.00: Keflavík-Snæfell
20.30: Fjölnir-Njarðvík
21.30: Hamar/Þór Þorlákshöfn-Fjölnir b
Mynd/Þorsteinn Eyþórsson




