Í kvöld hefst þriðja umferðin í Iceland Express deild karla þegar þrír leikir eru á boðstólunum sem vitaskuld hefjast allir stundvíslega kl. 19.15. Stólarnir taka á móti Fjölni, Keflvíkingar mæta í Vodafonehöllina og Grindavík fær ÍR í heimsókn í Röstina.
Tindastóll, Fjölnir og Valur eru enn án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar og ljóst að annað hvort Tindastóll eða Fjölnir mun finna sín fyrstu stig í kvöld. Keflvíkingar unnu sannfærandi sigur á Stólunum í síðustu umferð þar sem Steven Gerard stýrði liðinu eins og herforingi í sínum fyrsta leik. ÍR mátti þola ósigur gegn nýliðum Þórs úr Þorlákshöfn í síðustu umferð á meðan Grindvíkingar eru með fullt hús eftir fyrstu tvo leikina.
Þriðju umferð í Iceland Express deild karla lýkur svo annað kvöld með eftirfarandi viðureignum:
Haukar-Stjarnan
KR-Njarðvík
Þór Þorlákshöfn-Snæfell
Þá eru tveir leikir á dagskránni í unglingaflokki kvenna:
19.30: Haukar-Fjölnir
20.00: KR-Njarðvík
Mynd/ [email protected] – Vinna Valsmenn sinn fyrsta sigur í kvöld þegar Keflavík kemur í heimsókn?




