Vængbrotnir en ekki þreklausir börðu ÍR-ingar sér leið í átt að sigri þegar Snæfell kom í heimsókn í Hellinn í Iceland Express deild karla í kvöld. Með afmælisbarnið Jimmy Bartolotta og Sveinbjörn Claessen utan vallar blés ekki byrlega í upphafi þar sem Snæfell leiddi 19-35 eftir fyrsta leikhluta en þá gyrtu ÍR-ingar í brók og lönduðu góðum sigri í miklum slag og náðu að komast á sigurbraut eftir að hafa tapað síðustu tveimur deildarleikjum.
Quincy Hankins-Cole vippaði sér hátt í uppkastinu og blakaði fram á Svein Arnar Davíðsson sem tróð fyrir gestina úr Stykkishólmi, þannig opnuðu Hólmarar leikinn og sýningin hélt áfram undir styrkri stjórn nýja mannsins, Marquis Hall sem í fyrsta leikhluta gaf helmingi fleiri stoðsendingar en Brandon Cotton gerði í sömu stöðu hjá Snæfell í síðustu tveimur leikjum.
Marquis Hall gerði sín fyrstu úrvalsdeildarstig úr þriggja stiga skoti og í stöðunni 9-5 tóku Hólmarar á rás, gerðu 12 stig í röð og breyttu stöðunni í 9-17 og þá tók Gunnar Sverrisson leikhlé fyrir ÍR.
Heimamenn mættu með svæðisvörn úr leikhléinu sem Snæfell tætti í sig og leiddu 19-35 að loknum fyrsta leikhluta! Varnarleikur ÍR og þá sérstaklega svæðivörnin var hriplek og ljóst að ÍR-ingar söknuðu sárt þeirra Jimmy Bartolotta og Sveinbjarnar Claessen í kvöld.
Gunnar Sverrisson hefur náð að kveikja í sínum mönnum að loknum fyrsta leikhluta því ÍR-ingar komu baráttuglaðir inn í annan leikhluta og Eiríkur Önundarson gaf tóninn með þrist, munaðarvara fram til þessa í leiknum þar sem ÍR var 0-5 í þristum eftir fyrsta fjórðung.
Þristunum hélt áfram að rigna og þeir urðu fimm talsins og ÍR náði 12-0 áhlaupi áður en Quincy Hankins-Cole tróð fyrstu stigum Snæfells í leikhlutanum. ÍR jafnaði loks leikinn í 39-39 og allt annar bragur var á varnarleik heimamanna, sjálfstraustið gerði vart við sig í varnarleiknum um leið og skotin fóru að detta. Hólmarar brugðu sér í svæðisvörn á lokaspretti fyrri hálfleiks en það skipti litlu fyrir ÍR sem vann leikhlutann 29-11 og leiddu 48-46 í hálfleik.
Nemanja Sovic var með 22 stig í hálfleik hjá ÍR og Ellert Arnarson kom honum næstur með 8. Hjá Snæfell var Quincy Hankins-Cole með 10 stig og Jón Ólafur Jónsson með 9 og Marquis Hall með 8 stig og 8 stoðsendingar.
Töluvert meira jafnvægi var komið í leik liðanna strax í síðari hálfleik, bæði lið léku maður á mann vörn eftir að svæðisvarnir þeirra beggja voru rifnar á hol í fyrri hálfleik. Hólmarar byrjuðu betur en hægt og sígandi unnu ÍR-ingar á í þriðja leikluta. Þegar rúm mínúta var eftir stóðu leikar 61-61 og staðan að loknum leikhlutanum var 66-63 ÍR í vil þökk sé Ellerti Arnarsyni. Best væri ef frjálsíþróttamógúllinn Sigurbjörn Árni Arngrímsson myndi lýsa því sem átti sér stað en Ellert brunaði upp allan völlinn á nýju og glæsilegu Íslandsmeti, lagði boltann í körfuna og fékk villu að auki þegar 0,6 sekúndur voru eftir af þriðja leikhluta. ÍR vann leikhlutann 18-17 og spennadi lokasprettur framundan.
Snemma í fjórða leiklhuta náði ÍR tíu stiga forskoti, 73-63. Sigurinn var innan seilingar og sama hvað gestirnir reyndu þá gáfu ÍR-ingar stigin ekki frá sér. Sjálfstraustið var í botni í hvert skipti sem þeir Níels og Eiríkur Önundarson voru á parketinu í liði ÍR í kvöld og þegar tæpar tvær mínútur voru til leiksloka veitti Níels Snæfellingum náðarhöggið, þristur sem breytti stöðunni í 82-70 og lokatölur reyndust svo 85-80 og gerðu Hólmarar vel að saxa niður muninn og halda innbyrðisviðureigninni opinni.
Níels Dungal og Eiríkur Önundarson voru helstu prímusmótorar ÍR í kvöld, ÍR var 19 stig í plús með Níels innan vallar og 20 með Eirík. Níels gerði 14 stig, tók 14 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Eiríkur var með 9 stig, 4 stoðsendingar og 4 fráköst. Nemanja Sovic var stigahæstur í sigurliðinu með 26 stig og 3 fráköst. Þá átti Ellert Arnarson einni lipra spretti.
Hjá Snæfell var Quincy Hankins-Cole með 21 stig og 9 fráköst, Jón Ólafur Jónsson gerði 15 stig og tók 11 fráköst og Marquis Hall komst vel frá sínum fyrsta leik eftir örfáar æfingar með nýja liðinu sínu, ekki fjarri þrennunni með 10 stig, 10 fráköst og 9 stoðsendingar.
Stigaskor:
ÍR: Nemanja Sovic 26, Ellert Arnarson 17/5 stoðsendingar, Níels Dungal 14/14 fráköst/5 stoðsendingar, Williard Johnson 11/4 fráköst, Eiríkur Önundarson 9/4 fráköst, Kristinn Jónasson 6/8 fráköst, Hjalti Friðriksson 2/5 fráköst, Þorvaldur Hauksson 0, Vilhjálmur Theodór Jónsson 0, Bjarni Valgeirsson 0, Tómas Aron Viggóson 0, Húni Húnfjörð 0.
Snæfell: Quincy Hankins-Cole 21/9 fráköst, Jón Ólafur Jónsson 15/11 fráköst/3 varin skot, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 11/6 stoðsendingar, Marquis Sheldon Hall 10/10 fráköst/9 stoðsendingar, Ólafur Torfason 8/7 fráköst, Hafþór Ingi Gunnarsson 8, Sveinn Arnar Davidsson 7, Egill Egilsson 0/4 fráköst, Þorbergur Helgi Sæþórsson 0, Magnús Ingi Hjálmarsson 0, Guðni Sumarliðason 0, Daníel A. Kazmi 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Steinar Orri Sigurðsson
Byrjunarliðin:
ÍR: Ellert Arnarson, Willard Johnson, Nemanja Sovic, Hjalti Friðriksson og Kristinn Jónasson.
Snæfell: Pálmi Freyr Sigurgeirsson, Sveinn Arnar Davíðsson, Marquis Hall, Jón Ólafur Jónsson og Quincy Hankins-Cole.
Stiklur:
-Jimmy Bartolotta lék ekki með ÍR í kvöld, enn fjarri eftir nefbrotið frá Grindavíkurleiknum.
-Sveinbjörn Claessen var ekki með ÍR í kvöld, meiddist einnig gegn Grindavík.
-Fyrir leikinn í kvöld hafði ÍR tapað síðustu tveimur deildarleikjum, gegn Þór Þorlákshöfn og Grindavík.
-Fyrir leikinn í kvöld hafði Snæfell tapað síðasta deildarleik, gegn Þór Þorlákshöfn.
-Marquis Hall lék sinn fyrsta leik fyrir Snæfell í kvöld, í fyrsta leikhluta gaf hann 6 stoðsendingar, eða helmingi fleiri en Brandon Cotton gerði samanlagt í leikjum Snæfells gegn KR og Þór Þorlákshöfn sem voru alls 3 talsins!
-Snæfell vann í kvöld fyrsta leikhluta 35-19, ÍR vann annan leikhluta 29-11, hvernig hljómar það fyrir sveiflukenndan fyrri hálfleik?
Umfjöllun/ Jón Björn Ólafsson – [email protected]




