"Við missum náttúrulega Ægir útaf sárþjáðan og strákarni fá eðlilega smá sjokk við það en hann er okkar leiðtogi. Svo var þetta bara farið að snúast um það að gera hvað sem er til að ná sigri. Þetta var ekki fallegt en sigurinn er það sem telur það er það sem skiptir máli".
Veistu hver staðan á Ægi er?
Nei, en ég mun hringja strax og ég fæ tækifæri til. Ég vona að það sé ekki alvarlegt því þetta er einn mesti snillingur sem ég veit um og hann er að fara út í háskólanám. Ég vona að þetta sé ekki alvarlegt og ég hef svo mikla trú á honum að hann hristir hvað sem er af sér. Ef Ægir Steinarsson kveinkar sér þá er eitthvað mikið að.
Ragnar Gylfason, leikmaður Vals, byrjaði leikinn fyrir Val í kvöld eftir að hafa setið á bekknum fyrstu þrjá leikina sökum meiðsla.
"Þetta er bara slæm byrjun. Við þurfum að fara að girða okkur í brók. Ég held að við séum að bæta okkur í hverjum leik. Við hefðum þurft að vinna þennan en vorum grátlega nálægt því. Hlupum flott kerfi í lokin en vorum óheppnir að stíga útaf. Það tapaði ekki leiknum, við vorum búnir að tapa honum í fyrsta leikhluta. Liðið er að koma saman, nýjir gaurar að koma inn og við erum að gela saman. Við verðum bara að vera þolinmóðir og vonandi er ekki langt í fyrsta sigur".
Hvernig leið þér í fyrsta leik eftir meiðsli?
"Var ágætlega ferskur til að byrja með en svo dró aðeins af mér, maður er búinn að vera frá í tvær vikur".




