Njarðvíkingar voru ekki í miklum vandræðum með gesti sína úr Hveragerði í kvöld þegar liðin mættust í Ljónagryfjunni. 90:54 var lokastaða leiksins þar sem að allir leikmenn UMFN komust á blað. Leikur gestanna var afar tilviljannakenndur og áttu þeir aldrei möguleika í þessum leik.
Leikurinn var hraður til að byrja með og strax frá upphafi sást í hvað stefndi. Varnarleikur Njarðvíkinga hefur verið þeirra akkilesarhæll í undanförnum leikjum og virtust gestirnir ætla sér að nýta sér það. En það voru batamerki á varnarleik þeirra í þessum leik þó hún geti alltaf orðið betri.
Fátt var um fína drætti í þessum leik. Heimamenn léku sóknarleik sinn hratt og óeigingjarnt , einmitt það meðal sem þarf gegn svæðisvörn. Það gekk eftir og oftar en ekki voru Njarðvíkingar í úrvalsfæri sem þeir kláruðu vel.
Hjá Hamar er í raun sorglegt að segja frá því að Brandon Cotton var þeirra skástur með 23 stig. Hæfileikaríkur leikmaður með mikið sjálfstraust en undirritaður sá það í kvöld að það voru líkast til fleiri ástæður að baki þess að hann hafi verið látin fara frá Snæfell. Kappinn sendi NÚLL stoðsendingar og aðrar sendingar á liðsfélaga sína var nánast hægt að telja á annari hendi.
mynd/texti: [email protected]




