HomeFréttirMarel kominn í 413 leiki

Marel kominn í 413 leiki

Tveir reynsluboltar snéru aftur inn á parketið í gærkvöldi, þeir Marel Örn Guðlaugsson í Haukum og Páll Kristinsson í Njarðvík. Með þátttöku sinni í leiknum í gærkvöldi komst Marel í 413 leiki og bætir því ennfrekar sitt eigið met sem leikjahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Páll Kristinsson nær inn á topp tíu listann og er í 7. sæti með 355 leiki.
Páll og Marel komust báðir vel frá sínu í gærkvöldi þegar Njarðvík lagði Hauka í Schenkerhöllinni. Marel setti tvo risavaxna þrista í fjórða leikhluta en það dugði ekki til að kveikja í Haukum þar sem Njarðvík vann lokasprettinn 14-2 og leikinn 75-85.
 
Næsti ,,virki“ leikmaður í úrvalsdeildinni á eftir Marel er Eiríkur Öndunarson leikmaður ÍR í 6. sæti með 363 leiki.
 
Tíu leikjahæstu menn úrvalsdeildarinnar frá upphafi:
 
Marel Guðlaugsson – 413
Guðjón Skúlason – 409
Teitur Örlygsson – 405
Valur Ingimundarson – 400
Gunnar Einarsson – 375
Eiríkur Önundarson – 363
Páll Kristinsson – 355
Guðmundur Bragason – 348
Sverrir þór Sverrisson – 343
Páll Axel Vilbergsson – 340
 
(Þeir sem enn leika í úrvalsdeild eru feitletraðir)
(Guðmundur Bragason er enn að spila en ekki í úrvalsdeild)
 
Fréttir
- Auglýsing -