HomeFréttirJón Sverrisson: Ef við spilum svona getum við tekið alla

Jón Sverrisson: Ef við spilum svona getum við tekið alla

Jón Sverrisson var lykilmaður í liði Fjölnis sem sigraði Tindastól örugglega í Dalhúsum í kvöld, 106-87.  Jón skoraði 21 stig í leiknum ásamt því að hirða 10 fráköst og gefa 4 stoðsendingar.  Jón segir varnarleikinn vera lykilinn að þessum sigri og fagnar því að varnarleikurinn hafi hepnast jafnn vel og raun bara vitni
"Við erum bara alveg í skýjunum.  Loksins small vörnin, við gátum eitthvað í vörn, töluðum saman.  Þetta snýst líka bara mikið um baráttu.  Baráttan kom, leikgleðin og það er það sem skiptir máli.  Ef við spilum svona þá getum við tekið alla.  Það sést hérna, við pökkum þeim saman, gjörsamlega".  

Fjölnismenn hafa verið þekktir fyrir að spila hraðan bolta undir leikstjórn Ægis Þór Steinarssonar sem fór í víking til bandaríkjanna en það var ekki að sjá á Fjölnismönnum í kvöld að það vantaði nokkurn mann í liðið

"Við höfðum sérstaklega hraðan þegar menn eins og Ægir voru hérna en ég meina það koma nýjir menn í hans stað og við bara lítum mjög vel út í kvöld.   Ef við spilum hratt þá koma stolnu boltarnir okkar og þannig getum við keyrt á þá.  Þannig virkum við mjög vel.  Það kemur alltaf maður í manns stað, það er bara þannig.  Gunnar Ólafsson mætir hérna, fæddur "93, hans fyrsti eða annar leikur í meistaraflokk.  Stóð sig eins og hetja.  Svona er þetta í grafarvoginum.  Bara hafa gaman af þessu og þá kemur þetta".  

Jón Sverrisson er að eiga sitt besta tímabil til þessa og hefur fengið aukið hlutverk í liði Fjölnis í vetur.  Hann hefur skorað 10.9 stig að meðaltali og tekið 7,9 fráköst á þeim 27 mínútum að meðaltali á leik sem hann spilar.  Það væri því auðvelt að komast að þeirri niðurstöðu að hann væri sá leikmaður í Iceland Express deildinni sem hefði bætt sig mest frá síðasta tímabili

"Ég er bara búinn að æfa vel.  Einhverntíman mun maður uppskera en ég mun verða betri, ég geri mitt besta, er búinn að spila vel núna og ætla að halda því áfram".  

[email protected]

mynd: Björn Ingvarsson

Fréttir
- Auglýsing -