Sex leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Derrick Rose lét vel að sér kveða í liði Chicago Bulls sem vann góðan útisigur gegn New York í stóra eplinu, 102-105.
Derrick Rose fór fyrir gestunum í Bulls með 32 stig og 13 stoðsendingar en Amare Stoudemire skartaði ekki síðri tvennu í liði Knicks með 34 stig og 11 fráköst. Carmelo Anthony fékk erfiðan þrist til að knýja fram framlengingu en skotið fór víðsfjarri og því fögnuðu Bulls sigri.
Önnur úrslit næturinnar
Atlanta 77-96 Memphis
San Antonio 93-81 New Orleans
Sacramento 95-92 Portland
LA Clippers 91-112 Denver
Golden State 119-101 Utah



