HomeFréttirGengur betur næst

Gengur betur næst

Hann var með daprasta móti, körfuboltinn sem boðið var upp á í Iðu í kvöld, þegar Hamar heimsótti heimamenn í F.Su., og engin leið fyrir nokkurn mann að gera sér grein fyrir því að þarna væri í gangi viðburður sem kallaður væri „grannaslagur“ í eðlilegu árferði. En svo því sé haldið til haga, þá vann Hamar með 85 stigum gegn 68 stigum F.Su.
 
 
Gangurinn í leiknum var í stórum dráttum á þann veg að leikmenn F.Su. mættu til leiks fljótlega eftir að leikklukkan var sett í gang. Hvergerðingar mættu hinsvegar ekki fyrr en eftir 5 mínútur eða svo, þegar staðan var 11-2, og skokkuðu með, fram að lokum fyrsta leikhluta. Það jogg dugði þeim til að minnka muninn í 5 stig, 20-15, fyrir lok fyrsta fjórðungs.
 
Þegar leikmenn F.Su. komu inn á völlinn í 2. leikhluta virtust þeir hafa gleymt erindi sínu á þennan stað. Hamarsmenn lulluðu áfram á sama hraða og fyrr og höfðu jafnað eftir 15 mínútna leik, 23-23. Eftir það voru gestirnir með yfirhöndina, utan þess að F.Su. náði að jafna 31-31 í upphafi seinni hálfleiks. Eftir 4 mínútur í seinni hálfleik var munurinn orðinn 10 stig og síðan bættu gestirnir í fremur en hitt, 15 stigum munaði þegar 9 mínútur voru eftir, en mestur varð munurinn í lokin, þessi 17 stig sem lokatölurnar vitna um. Örlítil lífsglæta sást þó til heimamanna þegar munurinn fór niður í 9 stig, 66-75 og 68-77, þegar 2-3 mínútur voru eftir, en svo var það búið og Hamar skoraði síðustu stigin.
 
Þessi frammistaða var grátleg fyrir lið F.Su. sem er í bullandi fallbaráttu og veitir ekki af hverjum mögulegum sigri til að tryggja stöðu sína. Í kvöld var nefnilega gullið tækifæri, því Hamarsliðið var í hreinskilni sagt hvorki fugl né fiskur í þessum leik, hverju sem um var að kenna. Baráttan og eldmóðurinn sem maður hefur óneitanlega oft hrifist af hjá liðinu var víðsfjarri núna og allir lykilmenn langt frá sínu besta. Þó bjargaði Halldór Gunnar Jónsson andlitinu með nokkrum góðum þriggja stiga körfum, eins og hann er þekktur fyrir, í síðasta fjórðungi og rak með því síðustu naglana í kistu F.Su. Einnig verður að geta Mikaels Rúnars Kristjánssonar, kornungs leikmanns sem nýtti sínar mínútur vel og gerði laglega hluti, og Kristins Hólm Runólfssonar sem kom inn á eins og stormsveipur og sallaði strax niður þrem-fjórum körfum. Besti maður Hamars var samt Daði Steinn, liðsstjórinn knái, sem dreifði mínútunum af alkunnri list: Ellefu Hamarsmenn spiluðu meira en 10 mínútur í leiknum. Geri aðrir liðsstjórar betur!
 
Fátt jákvætt er því miður hægt að segja um heimaliðið, þó maður gjarnan vildi. Bræðurnir Bjarni og Þorkell Bjarnasynir byrjuðu þó leikinn með ágætu lífsmarki, m.a. með þremur þriggja stiga körfum, og Þorkell hafði góðar gætur á hinum hávaxna miðherja Hamars, Ragnari Nathanaelssyni. Kjartan Atli bætti svo í púkkið þegar hann kom inn á, þannig að horfurnar voru alveg bærilegar fyrir ágætan reiting af áhorfendum þeim megin í stúkunni. En eftir 10 mínútna leik var svo allur vindur úr liðinu og hver í kapp við annan kastaði boltanum útaf eða í hendur andstæðinganna, í tíma og ótíma. Ef helmingurinn af þeim sóknum liðsins sem misfórst þannig hefði endað með körfuskoti, þá hefði leikurinn getað orðið jafn og spennandi, og trúlega endað á hinn veginn meira að segja, því ekki var, sannast sagna, feitan gölt að flá. Siggi Haff, sem nýkominn er til liðsins frá Ísafirði, kveikti tvisvar í netinu seint í leiknum og Orri spólaði sig fallega í gegn 2-3 sinnum, en meira var það varla.
 
Það er ábyggilegt að leikurinn í kvöld var það daprasta sem þessi lið bjóða upp á í vetur. Þetta voru vonbrigði fyrir áhorfendur, sem bjuggust við meiru því bæði lið hafa sýnt klærnar nýverið, Hamar með mjög góðum leik í sigri á KFÍ og F.Su. með frábærri frammistöðu og sigri á erfiðum útivelli á Egilsstöðum. Núna getur leiðin sem sagt aðeins legið upp á við og ekkert annað í stöðunni en að hlakka til næsta leiks. Þá verður gaman! 
 
 
Gylfi Þorkelsson
 
Fréttir
- Auglýsing -