Fjórir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þar sem Solna Vikings og Sundsvall Dragons lönduðu góðum sigrum en Jamtland og 08 Stockholm máttu sætta sig við tap á heimavelli.
Sundsvall 97-87 LF Basket
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 27 stig í liði Sundsvall og Hlynur Bæringsson bætti við 10 stigum og 8 fráköstum.
Solna 83-74 ecoÖrebro
Logi Gunnarsson skoraði 12 stig í liði Solna.
Jamtland 75-101 Södertalje
Brynjar Þór Björnsson skoraði 8 stig í liði Jamtland.
08 Stockholm HR 80-85 Norrköping
Helgi Magnússon gerði 11 stig fyrir 08 Stockholm.
Mynd/ Úr safni: Jakob Örn var stigahæstur í sigurliði Sundsvall í gær.



