HomeFréttirÞröstur: Vil sjá að minnsta kosti 500 Skagfirðina í Höllinn

Þröstur: Vil sjá að minnsta kosti 500 Skagfirðina í Höllinn

,,Það hefur enginn af okkur farið áður í Höllina í þennan leik, ég er samt ekki alveg viss með Rikka því hann fór beint í löggugallann og á vakt eftir leikinn," sagði Þröstur Leó Jóhannsson leikmaður Tindastóls eftir frækinn sigur Skagfirðinga á KR í undanúrslitum Poweradebikarsins í kvöld. Þröstur mun mæta uppeldisfélagi sínu Keflavík í úrslitum bikarsins í Laugardalshöll þann 18. febrúar næstkomandi.
,,Það verður extra sætt að fá að mæta gömlu félögunum en við erum búnir að tapa tvisvar fyrir þeim í vetur og fáum nú tækifæri til að bæta fyrir það," sagði Þröstur sem gerði 11 stig í liði Tindastóls í kvöld, tók 5 fráköst og gaf 3 stoðsendingar.
 
,,Við töpuðum fyrir Keflavík sannfærandi í fyrri umferðinni í deildinni og sigur þeirra var enn meira sannfærandi í Síkinu um daginn svo við eigum harma að hefna gegn þeim," sagði Þröstur og sagði Tindastól best þrífast í spennandi leikjum.
 
,,Þetta var týpískur okkar leikur í kvöld, við náum sprettum hér og þar, spilum þokkalega vörn en gefum KR aukatilraunir á köflum og þeir halda í við okkur. Svo líður okkur best þegar svona um tvær mínútur eru eftir af þessum spennuleikjum því þá skellum við í lás og setjum vítin niður, flestir okkar sigrar hafa verið svona í vetur og það sýnir að við erum sterkir í því að klára."
 
Grindvíkingar eru næstir á dagskrá í deildinni hjá Stólunum og Þröstur segir að liðið ætli ekki að fara á neitt flug þrátt fyrir að vera komnir með farseðilinn í Laugardalshöll:
 
,,Við þurfum að vera fljótir niður á jörðina enda leikur framundan gegn besta liðinu í deildinni eins og staðan er í dag," sagði Þröstur og var ánægður fyrir hönd nýja liðsfélaga síns Igors Tratnik sem fann sinn fyrsta sigur á tímabilinu með Tindastól í kvöld.
 
,,Tratnik er mjög góður, þetta var fyrsti sigurinn hans í vetur, hann er búinn að vera hér lengi án þess að vinna leik og var mjög sáttur í leikslok, sagði það góða tilfinningu að vinna. Það er virkilega gott að spila með honum og hann á mikið í mörgum hlutum hérna í kvöld sem endilega koma ekki fram í tölfræðinni. Það var t.d. mjög flott þegar hann ,,klobbaði" Finn og skoraði," sagði Þröstur en hvað mæta margir Skagfirðingar í Höllina þegar sá dagur kemur?
 
,,Ég veit nú ekki hvað margir búa hérna en ég ætla að segja að 500 manns mæti, ég vil sjá a.m.k. 500 Skagfirðinga í Laugardalshöll."
 
Mynd/ Hjalti ÁrnaÞröstur lætur þrist vaða á KR í Síkinu í kvöld.
 
Fréttir
- Auglýsing -