HomeFréttirJessika Bradley til liðs við Fjölniskonur

Jessika Bradley til liðs við Fjölniskonur

Bragi Magnússon og Fjölniskonur hafa fengið liðsstyrk fyrir lokasprettinn í Iceland Express deild kvenna en Jessika Bradley er komin til landsins og ætlar að klára tímabilið með Fjölni. Stefnt er að því að Jessika verði með Fjölni gegn Snæfell á eftir en það á eftir að koma í ljós hvort leikmaðurinn verði þá kominn með leikheimild.
 
Bradley lék með San Diego State háskólanum og lék m.a. gegn Helenu Sverrisdóttur þegar hún var hjá TCU háskólanum. Bradley er framherji og um 190cm. að hæð og er fædd árið 1988.
 
Þá hefur Fjölnir verið án Katinu Mandylaris undanfarið og sagði Bragi að hún væri hægt og rólega að koma til baka.
 
Mynd/ Úr safni: Bragi Magnússon mun mögulega prufukeyra nýjan liðsmann í kvöld ef leikheimild verður komin í tæka tíð.
 
Fréttir
- Auglýsing -