Örvar Þór Kristjánsson var sáttur með sigurinn hjá Fjölni í kvöld þegar liðið nældi sér í tvö stig í Vodafonehöllinni með sigri á Val. Örvar var ánægður með andstæðinga kvöldsins, kvað þá hafa barist vel þrátt fyrir að hafa misst mikið af leikmönnum og sagði þá vera flottari núna en áður.



