HomeFréttirWatson fór mikinn í Síkinu - Sigur Grindavíkur aldrei í hættu

Watson fór mikinn í Síkinu – Sigur Grindavíkur aldrei í hættu

Topplið Grindavíkur mætti norður í land í kvöld og lék gegn Tindastólsmönnum í Síkinu á Sauðárkróki. Það var greinilegt frá byrjun að gestirnir ætluðu ekki að láta síðasta leik endurtaka sig, alla vega ekki fyrstu 39 mínúturnar. Þeir mættu með hörku vörn og Giordan Watson gríðarlega sprækan í sókninni.
Stólarnir byrjuðu með sama byrjunarlið og í síðasta leik eða Curtis, Miller, Helga Rafn, Rikka og Igor Tratnik. Grindavíkumegin byrjuðu Watson, Jóhann Árni, Bullock, Sigurður og þá var Páll Axel mættur í byrjunarlið í fyrsta sinn í nokkurn tíma.
 
Tindastóll komst í 4 – 2 í byrjun en síðan bitu gestirnir frá sér og skoruðu 9 stig í röð og sýndu að þeir voru mættir til leiks. Í stöðunni 6 – 13 tók Bárður leikhlé fyrir heimamenn og stappaði stálinu í sína menn.  Það bar árangur því Stólarnir minnkuðu muninn í 16 – 19 þegar ein og hálf mínúta var eftir.  En aftur komu níu stig í röð frá Grindavík og leiddu þeir 16 – 28 að loknum fyrsta leikhluta. Giordan Watson hafði varla klikkað á skoti í fjórðungnum enda kominn með 13 stig.
 
Liðin skiptust á körfum lengstum í öðrum leikhluta, mestur fór munurinn í 16 stig, fyrst í stöðunni 20 – 36 og svo í lok hans, en staðan í hálfleik var 40 – 56. Grindvíkingar spiluðu góða vörn í fyrri hálfleik og þurftu Stólarnir að hafa mikið fyrir hverju stigi. Hinu megin var Watson áfram sjóðheitur fyrir gestina og kominn með 27 stig í hálfleik. Hjá Tindastóli var skarð fyrir skildi að bæði Þröstur Leó og Helgi Freyr meiddust í fyrri hálfleik og léku ekkert meira í leiknum.
 
Grindvíkingar héldu áfram að bæta við í síðari hálfleik og voru komnir með 20 stiga forskot um miðjan þriðja leikhluta. Þá fóru þriggja stiga skotin að detta hjá heimamönnum sem settu niður 6 slík í leikhlutanum. Ekki dugði það þó til að minnka bilið mikið og undir lok fjórðungsins áttu gestirnir 8 – 0 sprett og þegar síðasti leikhlutinn var bara eftir var staðan 67 – 89 og útlitið orðið svart fyrir Tindastól. Stólarnir reyndu að mæta gestunum með meiri hörku í síðari hálfleik, en uppskáru lítið annað en villur og þótti á köflum heldur halla á sig í dómgæslunni.
 
Stólarnir virtust ekki ætla að ógna Grindavík í upphafi fjórða leikhluta, en þegar rúmar þrjá mínútur voru búnar mátti litlu muna að upp úr syði í leiknum. Eftir einhverjar stympingar á miðjum vellinum fékk Ólafur Ólafsson tæknivillu og smá pirringur gerði vart við sig hjá gestunum. Tindastóll skoraði næstu sex stig og staðan 79 – 91 og smá von enn. Helgi Jónas tók þá leikhlé og róaði sína menn niður sem hleyptu heimamönnum ekki mikið nær næstu mínúturnar. Þegar rúmar tvær mínútur lifðu af leiknum var munurinn aftur kominn í 17 stig, staðan 83 – 100.  Stólarnir reyndu síðan sitt ýtrasta til að minnka muninn síðustu mínúturnar með góðum stuðningi áhorfenda, en sigur Grindavíkur var aldrei í hættu og lokatölur 96 – 105.
 
Stigahæstur Tindastólsmanna var Curtis Allen með 23 stig og fína nýtingu. Næstur kom Maurice Miller með 17 stig og 8 stoðsendingar og Helgi Rafn var með tvöfalda tvennu eða 16 stig og 10 fráköst.
Hjá Grindavík bar Giordan Watson uppi sóknarleikinn með 40 stig og 7 stoðsendingar. Þá var Bullock með 22 stig og 7 fráköst og hitt tröllið Sigurður Gunnar Þorsteinsson var með 15 stig.
 
Stigaskor Tindastóls: Allen 19, Miller 17, Helgi Rafn 16, Tratnik 14, Hreinn 9,  Svavar 7, Helgi Freyr 6 og Rikki og Þröstur 2 stig hvor.
 
Grindavík: Watson 40, Bullock 22, Sigurður 15, Páll Axel 10, Þorleifur 10, síðan voru Ómar, Pettinella, Jóhann Árni og Ólafur allir með 2 stig hver.
 
Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson og Davíð Kr. Hreiðarsson.
 
 
Texti: JS
Fréttir
- Auglýsing -