HomeFréttirFannar Helgason: mjög leiðinlegt að tapa þessum leik

Fannar Helgason: mjög leiðinlegt að tapa þessum leik

Fannar Helgason, leikmaður Stjörnunnar, var að vonum ekki mjög brattur eftir naumt tap fyrir KR í DHL-höllinni í kvöld. Fannar fann sig illa í kvöld, skoraði aðeins 5 stig og náði ekki einu frákasti á þeim 20 mínútum sem hann spilaði en Fannar hafði tekið rúmlega 6 fráköst á leik á tímabilinu fram að þessu.

,,Mjög leiðinlegt að tapa þessum leik. Svona leikur sem getur dottið báðu megin, frekar jafn allan leikinn en við vorum samt alltaf að elta. Við fengum fullt af tækifærum en vorum klaufar. Þeir eru rosalega seigir í hröðum leik og það var okkar markmið að stoppa það. Um leið og við gleymum okkur í smá stund og förum að reyna að hlaupa með þeim þá bara ná þeir upp forskoti. Þegar við náum að stjórna tempoinu þá erum við miklu betri, þá náum við þeim alltaf til baka en síðan förum við í sama kjaftæðið og missum þá framúr okkur. Þetta snérist bara um að stjórna tempóinu og þeir unnu leikinn þannig að þeir stjórnuðu því betur."

Eins og staðan er í dag eru þrjú lið jöfn í öðru til fjórða sæti með 20 stig og þar á eftir koma tvö næstu lið með 18 stig. Baráttan um heimavallarréttinn í úrslitakeppninni er því farin að verða ansi hörð. Er það ekki skýr stefna hjá Stjörnunni að ná þeim rétti?

,,Jújú, ekkert annað. Þar byrjar mótið og bara að reyna að koma sér í besta stöðu fyrir þa."

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -