Tugir leikja eru á dagskránni í dag og Iceland Express deild kvenna verður í brennidepli þegar 22. umferð deildarinnar hefst með þremur leikjum. Það eru Haukar og Njarðvík sem ríða á vaðið kl. 13.30 þegar liðin mætast í Schenkerhöllinni í Hafnarfirði en það verður skammt stórra högga á milli hjá þessum félögum því þau mætast aftur á mánudag í undanúrslitum Powerade-bikarsins.
Kl. 16:30 í dag bjóða Reykjavíkurliðin KR og Valur á sinn heimavöll þegar Snæfell mætir Val og KR fær Hamar í heimsókn í DHL-Höllina. Umferðinni lýkur svo á morgun með viðureign Fjölnis og Keflavíkur í Dalhúsum í Grafarvogi.
Í dag eru 14 stig eftir í pottinum í úrvalsdeild kvenna og því getur enn margt breyst en fjögur efstu lið deildarinnar tryggja sér sæti í úrslitum. Væri blásið til úrslitakeppninnar í dag yrði hún skipuð Keflavík, Njarðvík, Haukum og KR.
Staðan í Iceland Express deild kvenna
| Nr. | Lið | U/T | Stig |
|---|---|---|---|
| 1. | Keflavík | 17/4 | 34 |
| 2. | Njarðvík | 15/6 | 30 |
| 3. | Haukar | 12/9 | 24 |
| 4. | KR | 12/9 | 24 |
| 5. | Snæfell | 10/11 | 20 |
| 6. | Valur | 8/13 | 16 |
| 7. | Hamar | 5/16 | 10 |
| 8. | Fjölnir | 5/16 | 10 |



