Stjörnumenn tóku á móti Þórsurum úr Þorlákshöfn í Ásgarði í kvöld. Þórsarar hafa verið á fínu róli upp á síðkastið en gengi Stjörnunnar hefur heldur dalað eftir áramót, eftir frábæran fyrri hluta tímabils. Þó sátu Stjörnumenn í þriðja til fjórða sæti ásamt Keflvíkingum fyrir leik kvöldsins.
Heimamenn virtust í upphafi ætla að hrekja burt alla þá drauga sem hafa elt þá að undanförnu. Sóknarleikur liðsins virtist í góðu lagi fyrstu fimm mínútur fyrsta fjórðungs og náðu þeir 7 stiga forystu. En um miðbik leikhlutans komust gestirnir æ betur inn í leikinn. Blagoj Janev var drjúgur í liði gestanna og var með 11 stig í fyrsta. Að loknum fyrsta leikhluta höfðu Þórsarar sex stiga forystu, 21-27, og var þegar ljóst að einhvern neista vantaði hjá heimamönnum.
Gestirnir léku enn betur í öðrum fjórðung, vörn Þórsara var mjög föst og áhrifarík og Stjörnumenn komust lítt áleiðis. Sóknarleikur heimamanna var virkilega slakur og vörnin nánast verri og forysta Þórsara var meiri en tíu stig drjúgan hluta leikhlutans. Justin Shouse, langbesti maður Stjörnunnar í kvöld, náði þó að draga fram nokkur stig í lok hálfleiksins og sjá til þess að munurinn væri ekki nema níu stig í leikhléi, 40-49.
Þórsarar héldu uppteknum hætti í þriðja leikhluta. Sóknarleikur heimamanna hafði þó batnað talsvert, menn fengu opin skot en það var sem veggur hafi verið múraður á körfuhring Þórsara, svo léleg var skotnýting Stjörnunnar. Govens, Hairston og Janev voru drjúgir fyrir heimamenn og Darri Hilmarsson átti flottar rispur. Stjörnumenn náðu þó aðeins að rétta sinn hlut fyrir lokaleikhlutann, en Þórsarar leiddu samt, 56-63.
Leikurinn varð þó eiginlega aldrei spennandi eftir þetta. Stjörnumenn virtust nokkrum sinnum líklegir til að koma til baka, en í hvert skipti náðu gestirnir, með Govens og Hairston fremsta í flokki að svara með flottum sóknum. Fór því svo að Þórsarar unnu nokkuð sannfærandi átta stiga útisigur á slöku liði Stjörnunnar, 80-88.
Matthew Hairston var stigahæstur Þórsara með 23 stig, en kappinn sá átti sannkallaðan stórleik. Hairston var með 41 framlagsstig, en auk stiganna 23 tók hann 16 fráköst og varði sjö skot, hvert öðru mikilvægara.
Justin Shouse var allt í öllu hjá Stjörnunni, með 32 stig. Svo virtist sem aðrir leikmenn hafi ekki mætt til leiks, en þó náði Renato Lindmets að skora 20 stig, en var þó ekki með góða nýtingu inni í teig. Leikur Stjörnumanna hefur dalað umtalsvert eftir áramót og ljóst að þeir þurfa að spíta harkalega í lófana ætli þeir sér ekki að hrapa niður töfluna. Þó svo að Þórsarar hafi yfirleitt ekki haft meira en 10 stiga forskot í kvöld, að þá voru þeir mjög vel að sigrinum komnir, enda augljóslega betra liðið á vellinum.
Stigaskor:
Stjarnan: Justin Shouse 32/4 fráköst/6 stoðsendingar, Renato Lindmets 20/9 fráköst, Keith Cothran 12/6 fráköst, Guðjón Lárusson 8/6 fráköst, Marvin Valdimarsson 4/7 fráköst/5 stoðsendingar, Jovan Zdravevski 2/4 fráköst, Sigurjón Örn Lárusson 2, Sigurbjörn Ottó Björnsson 0, Tómas Þórður Hilmarsson 0, Fannar Freyr Helgason 0/4 fráköst, Dagur Kár Jónsson 0, Magnús Bjarki Guðmundsson 0.
Þór Þorlákshöfn: Matthew James Hairston 23/16 fráköst/7 varin skot, Blagoj Janev 22/9 fráköst, Darrin Govens 20/7 stoðsendingar, Darri Hilmarsson 12/4 fráköst, Guðmundur Jónsson 7/4 fráköst, Baldur Þór Ragnarsson 4/5 stoðsendingar, Vilhjálmur Atli Björnsson 0, Erlendur Ágúst Stefánsson 0, Emil Karel Einarsson 0.
Mynd/ [email protected] – Hairston fór fyrir Þór í Ásgarði
Umfjöllun/ Elías Karl Guðmundsson



