Í leikjum kvöldsins í Iceland Express deild karla voru það Keflavík, Grindavík og Tindastóll sem fóru með sigur af hólmi þetta kvöldið. Keflavík skellti KR í Toyotahöllinni, 95:83. Grindavík fór létt með Valsara 119:81 og svo voru það Tindastólsmenn sem gerðu góða ferð í Hellir þeirra ÍR-inga og sigruðu 96: 92 í hörkuleik. Meira um leikina síðar í kvöld



