Tveir stórleikir fara fram í kvöld í unglingaflokki karla og unglingaflokki kvenna þegar leikið verður í undaúrslitum bikarkeppninnar. KR fær Njarðvík í heimsókn og í Vodafonehöllinni mætast Valur og Keflavík.
Viðureign Vals og Keflavíkur hefst kl. 19:30 í Vodafonehöllinni en KR-Njarðvík hefst kl. 20:00 í DHL-Höllinni í Vesturbænum og verður í beinni á KR TV.
Í hinum undanúrslitaleik karla mætast Fjölnir og KFÍ næsta laugardag en í kvennaflokki eigast við Snæfell og Haukar á mánudag í Stykkishólmi.
Mynd/ [email protected] – Kristófer Acox og félagar í unglingaflokki KR fá Njarðvík í heimsókn í kvöld.



