HomeFréttirBikarspá: Guðjón Skúlason

Bikarspá: Guðjón Skúlason

Keflvíkingurinn Guðjón Skúlason trúir því að Suðurnesin muni taka báða bikartitlana á laugardag þegar Poweradebikarúrslitin fara fram í Laugardalshöll. Guðjón er næsti bikarspámaður á Karfan.is og mun ekki láta sig vanta í Höllina um helgina.
Kvennaleikurinn
Njarðvík-Snæfell
 
-Hvernig spilast þessi?  
Verður jafn og spennandi leikur og fer mikið eftir framlagi erlendu leikmannanna hjá báðum liðum, það lið sem fyrr finnur sinn leiktakt vinnur. Hallast að því að UMFN vinni vegna fyrri viðureigna þessara liða í vetur en Ingi Þór kann að undirbúa lið fyrir svona leiki.
 
 
-Hver mun stíga upp og baka sér myndarlega bikarminningu?  
Ég held að Petrúnella hjá UMFN verði sú sem stígur upp, en þetta er leikur til að sýna sig fyrir landsliðsþjálfara.
 
 
-Hver verður bikarmeistari?  
UMFN
 
Karlaleikurinn
Tindastóll-Keflavík
 
-Hvernig spilast þessi?  
Stífar varnir til að byrja með og kannski allan fyrri hálfleikinn og lítið skor en fer svo á fullt eftir það.  
 
-Hver mun stíga upp og baka sér myndarlega bikarminningu?  
Sá sem hefur verið að spila einna best í deildinni í ár er Maggi og mér finnst hann eiga sæti í landsliði skilið eins og hann spilar núna, Maggi mun leiða sitt lið og það er mikið hungur hjá honum að sanna sig enn og aftur.  
 
 
-Hver verður bikarmeistari?  
Keflavík.  
  
Fréttir
- Auglýsing -