HomeFréttir10. fl Drengja bikar: Njarðvík í úrslit

10. fl Drengja bikar: Njarðvík í úrslit

 Karfan.is brá sér í Grindavíkina í kvöld og kíkti á leik Grindavíkur og Njarðvíkur í 10. flokki drengja en þetta var leikur í undanúrslitum bikarkeppninar. Framtíðarstjörnur Íslands í körfuboltanum sýndu þetta kvöldið skemmtilega takta og baráttan var í fyrirrúmi hjá báðum liðum. 
Leikurinn var í járnum nánast allan tímann en á lokasprettinum voru það Njarðvíkingar sem náðu að klára leikinn og sigra að lokum með 6 stiga mun 60:66. Hjá Njarðvík voru þeir Kristinn Pálsson og Magnús Traustason atkvæðamestir.  Hjá Grindavík var Jón Axel Guðmundsson atkvæðamestur í skorun ásamt Hinrik Guðbjartssyni.  Þrátt fyrir að þessir peyjar hafi staðið uppúr í stigaskorun þá fá allir drengirnir hrós frá Karfan.is fyrir að bjóða uppá spennandi og skemmtilegan körfubolta. 
 
Á morgun leika svo Haukar gegn KR í hinum undanúrslitaleiknum en leikurinn Schenkerhöll þeirra Haukamanna.
 
Mynd: Kristinn Pálsson var atkvæðamestur fyrir Njarðvíkinga þetta kvöldið
Fréttir
- Auglýsing -