Poweradebikarúrslitin fara fram í Laugardalshöll í dag og hefst fjörið kl. 13.30 með kvennaviðureign Njarðvíkur og Snæfells og þar strax á eftir fer fram úrslitaleikur karla þar sem mætast Tindastóll og Keflavík. Miðasala á leikina fer fram á midi.is.
Í kvennaflokki eru Njarðvíkingar að leika til bikarúrslita í fjórða sinn en Snæfell í það fyrsta. Liðin eiga það þó bæði sameiginlegt að hafa aldrei orðið bikarmeistarar. Í karlaflokki eru Tindastólsmenn að leika til úrslita í fyrsta sinn en Keflvíkingar þekkja það að fara í Höllina og hafa fimm sinnum orðið bikarmeistarar, síðast árið 2004.
Flestir bikarmeistaratitlar karla 1970-2011:
10 KR (1970, 71, 72, 73, 74, 77, 79, 84, 91, 2011)
8 Njarðvík (1987, 88, 89, 90, 92, 99, 2002, 05)
5 Keflavík (1993, 94, 97, 2003, 04)
4 Grindavík (1995, 98, 2000, 06)
3 Valur (1980, 81, 83)
3 Haukar (1985, 86, 96)
2 Ármann (1975, 76)
2 ÍR (2001, 07)
2 Snæfell (2008, 10)
1 ÍS (1978)
1 Fram (1982)
1 Stjarnan (2009)
Flestir bikarmeistaratitlar kvenna 1975-2011:
12 Keflavík (1988, 89, 90, 93, 94, 95, 96, 97, 98, 2000, 04, 2011)
10 KR (1976, 77, 82, 83, 86, 87, 99, 2001, 02, 09)
7 ÍS (1978, 80, 81, 85, 91, 2003, 06)
5 Haukar (1984, 92, 2005, 07, 10)
1 Þór Akureyri (1975)
1 ÍR (1979)
1 Grindavík (2008)
Upplýsingar fyrir stuðningsmenn liðanna:
Keflavík:
Hópferðir Sævars verða með rútuferðir á morgun fyrir stuðningsmenn.
Trommusveitin leggur af stað kl. 12:00 frá sunnubraut og verður kaldur drykkur í boði. Þeir munu taka stefnuna á Ölver, þar sem upphitun mun eiga sér stað. Veitingar á tilboði fyrir Keflvíkinga.
Seinni rútan fer kl. 14:30 frá sunnubraut.
Tindastóll:
Vegna leiks Tindastóls og Keflavíkur í bikarúrslitum næstu helgi verður boðið upp á sætaferð á leikinn. Skráning og nánari upplýsingar í síma 825 4417 hjá Jóni Inga, en verðið er aðeins 1000 krónur.
Þá býður Arctic Comfort Hotel upp á tilboð á gistingu fyrir þá sem vilja dvelja lengur í borginni. Ein nótt í tveggja manna herbergi m/morgunverði á krónur 7.990,- og tvær nætur m/morgunverði á krónur 13.000,-
Hótel Arctis Comfort Hotel er staðsett í Síðumúla 19, sem er í göngufæri frá Laugardalshöllinni.
Njarðvík:
Rútuferðir frá íþróttahúsinu í Njarðvík kl. 11.30 og heim aftur að leik loknum eða um kl. 15.30.