HomeFréttirNjarðvík hefur þriggja stiga forskot í hálfleik 38-41

Njarðvík hefur þriggja stiga forskot í hálfleik 38-41

 

Njarðvík hefur þriggja stiga forskot þegar liðin halda inní klefa til að skipuleggja seinni tvo leikhlutana í bikarúrslitaleiknum árið 2012.  Lele Hardy og Shanae Baker hafa farið á kostum í leiknum og farið illa með lið Snæfells á köflum.  Hardy hirti hvorki færri né fleiri en 16 fráköst í fyrri hálfleik sem eru fáheyrðar tölur í körfubolta, en það eru aðeins 2 færri fráköst en allt Snæfells liðið tók í fyrri hálfleik.  Shanae Baker hefur farið fyrir sóknartilburðum Njarðvíkur og skorað 24 stig og tekið 8 fráköst.  Í liði Snæfells er Kieraah Marlow farið fyrir sínu liði og skorað 24 stig en hún hefur ekki átt erindi sem erfiði gegn framherjum Njarðvíkur í frákastabaráttunni og aðeins tekið eitt frákast.

 Það er því hægt að búast við æsispennandi seinni hálfleik hérna í laugardalshöllinni.  
 
Fréttir
- Auglýsing -