Keflavík leiðir með 11 stigum í hálfleik, 52-41, eftir fjörugan fyrri hálfleik í laugardalshöllinni. Keflavík tók frumkvæðið strax á upphafsmínútum leiksins og hafa ekkert gefið eftir. Stuðningsmenn beggja liða taka vel undir og óhætt að segja að svona stemming sé ekki á hverju strái á Íslandi. Höllin er nánast full og allir taka vel undir.
Stigahæstur í liði Keflavíkur í hálfleik var Charles M. Parker með 17 stig og 6 fráköst en næstir voru Magnús Gunnarsson með 11 stig og 6 stoðsendingar og Jarryd Cole með 8 stig og 5 fráköst. Í liði Tindastóls var Maurice Miller stigahæstur með 11 stig en næstir voru Svavar Atli Birgisson og Friðrik Hreinsson með 8 stig hvor.
Mynd: [email protected]



