Keflavík tryggði sér bikarmeistaratitilinn 2012 eftir sigur á Tindastól í Laugardalshöllinni í dag, 97-95. Keflavík leiddi leikinn frá upphafi til enda en Tidnastóll hleypti þeim þó aldrei langt frá sér og hefðu með smá heppni undir lokin vel getað stolið sigrinum. Keflavík náði mest 14 stiga forskoti en lengst af var um það bil 10 stiga munur á liðunum. Tindastóll tókst þó að koma sér inní leikinn á lokasprettinum. Það dugði ekki til og Keflavík vann því tveggja stiga sigur og eru Powerademeistarar árið 2012. Mikilvægasti leikmaður leiksins var vel að titilinum kominn, Charles Parker með 32 stig, 13 fráköst og þessum 32 stigum skilaði hann niður með ótrúlega 64,7% nýtingu í teigskotum og 2 af þremur þristum ofaní. næstu menn hjá Keflavík voru Jarryd Cole með 19 stig og 8 fráköst og Magnús Gunnarsson með 17 stig og 8 stoðsendingar. Í liði Tindastóls var Maurice Miller stigahæstur með 22 stig og 8 stoðsendingar en næstir voru Curtis Allen með 18 stig og Svavar Atli Birgisson með 14 stig og 9 fráköst.
Tindastóll fann sig betur í öðrum leikhluta og náðu að vinna sig hægt og rólega aftur inní leikinn. Þegar þrjár og hálf mínúta var liðin af leikhlutanum tók Þröstur Leó sig til og setti þrist af kantinum og minnkaði muninn niður í 6 stig, 34-28. Sigurður Ingimundarsson var ekki lengi að taka leikhlé sem kveikti all hressilega í mögnuðum stuðningsmönnum Tindastóls. Keflavík vann það forskot hins vegar fljótt upp aftur og höfðu náð því upp í 11 stig þegar leikhlutinn var rúmlega hálfnaður, 40-29. Tindastóll var að þvinga mjög erfið skot sem reyndist þeim of erfið. Bárður Eyþórsson tók því leikhlé stuttu seinna í þeirri von að breyta gangi leiksins. Keflavík hafði þó tröllatak á leiknum og hélt muninum í kringum 10 stig næstu mínútur. Magnús Gunnarsson setti 5 stig í röð fyrir Keflavík á stuttum tíma sem stuðningsmenn Keflavíkur kunnu sýnilega vel að meta. Þegar flautað var til hálfleiks höfðu Keflvíkingar 11 stiga forskot, 52-41.
Stigahæstur í liði Keflavíkur í hálfleik var Charles M. Parker með 17 stig og 6 fráköst en næstir voru Magnús Gunnarsson með 11 stig og 6 stoðsendingar og Jarryd Cole með 8 stig og 5 fráköst. Í liði Tindastóls var Maurice Miller stigahæstur með 11 stig en næstir voru Svavar Atli Birgisson og Friðrik Hreinsson með 8 stig hvor.
Tondastóll tókst aftur að minnka forskot Keflvíkinga í upphafi þriðja leikhluta og höfð náð því niður í 6 stig, 48-54. Keflvíkingar höfðu þó alltaf svör og höfðu náð muninum aftur upp í 10 stig þegar leikhlutinn var hálfnaður. Jarryd Cole fékk þá sína fjórðu villu fyrir lélega tilraun til þess að trufla Igor Tratnik. Cole var því settur á ís en það kom maður í mans stað hjá Keflavík og munurinn var fljótt kominn aftur upp í 13 stig, 67-54. Það vantaði sárlega fleiri möguleika í sóknarleik Tindastóls sem saknaði framlags frá mönnum eins og Igor Tratnik sem hafði þá aðeins skorað 2 stig. Það var sama á hvorn veginn það var, ef Keflavík náði forskotinu yfir 10 stig þá svaraði Tindastóll og ef Tindastóll minnkaði muninn undir 10 stig þá svaraði Keflavík. Rétt áður en flautan gall í lok þriðja leikhluta setti Helgi Freyr Margeirsson niður þrist til þess að minnka muninn niður í 10 stig, 76-66.
Tindastóll átti svo fyrstu fjögur stig fjórða leikhluta og stuðningsmenn liðsins stóðu á fætur og létu vel í sér heyra, 76-70. Með þessum frábæra stuðningi og hnitmiðuðum þriggja stiga skotum náðu Tindastólsmenn hægt og rólega að minnka muninn niður í 5 stig, 78-83. Valur Orri Valsson svaraði því svo með flottum þrist og Bárður Eyþórsson tók leikhlé fyrir Tindastól, 86-78. Charles Parker kom Keflavík aftur í 11 stiga forskot þegar rúmlega fimm mínútur voru eftir af leiknum, 89-78. Hann tók svo hreinlega yfir leiknum þegar leið á og skoraði 7 af 9 stigum Keflavíkur á stuttum kafla. Tindastóll tók leikhlé stuttu seinna í stöðunni 93-83 en þá voru þrjár mínútur og 50 sekúndur eftir á klukkunni. Curtis Allen setti risastóran þrist þegar tvær og hálf mínútua var eftir af leiknum, 95-88, og hélt Tindastól inní leiknum. Curtis Allen lét ekki þar við sitja heldur stal boltanum í næstu sókn Keflavíkur, brunaði fram og tróð, 95-90. Tindastóll fékk tvö tækifæri á 30 sekúndna kafla til að minnka muninn enn meira en ekkert gekk, Keflavík hafði því ennþá fimm stiga forskot þegar Tindastóll tók leikhlé og aðeins 19 sekúndur eftir á klukkunni. Helgi Rafn Viggóson minnkaði muninn niður í 3 stig þegar 11 sekúndur voru eftir. Keflavík brunaði fram og þar endaði Magnús Gunnarsson á línunni þegar ein sekúnda var eftir, hann nýtti bæði vítin og tryggði þannig Keflavík sigurinn. Þröstur Leó Jóhannsson átti hins vegar seinasta orðið þegar hann negldi skoti af vítalínu eigin vallarhelmings ofaní en það dugði skammt þar sem Magnús Gunnarss hafði þegar tryggt Keflavík sigurinn, 97-95.
Karfan.is óskar Keflavík innilega til hamingju með bikarmeistaratitilinn 2012!!!
Mynd: [email protected]
Umfjöllun : [email protected]



