Nú er ljóst að KFÍ mun leika í úrvalsdeild karla á næsta ári eftir að Skallagrímur tapaði á heimavelli í 1. deild karla gegn Hetti um helgina. KFÍ hefur nú 30 stig á toppi deildarinnar og á tvo deildarleiki eftir. Í 2. sæti er Skallagrímur með 22 stig og á þrjá deildarleiki eftir og geta því ekki náð KFÍ að stigum. KFÍ er því sigurvegari í 1. deild karla árið 2012!
KFÍ hefur unnið 15 leiki í deildinni til þessa og tapað einum. Næst á dagskrá er viðureign gegn Breiðablik þann 26. febrúar í Smáranum.
Til hamingju KFÍ með úrvalsdeildarsætið!



