Það verða Snæfell og Valur sem leika munu til úrslita í bikarkeppni unglingaflokks kvenna en Hólmarar tóku á móti Haukum í Stykkishólmi í kvöld og höfðu betur gegn Hafnfirðingum 60-46. Valur lagði Keflavík í hinum undanúrslitaleiknum og því Snæfell og Valur sem kljást munu um bikartitilinn í unglingaflokki kvenna í Vodafonehöllinni um næstu helgi.
Vörnin var í fyrirrúmi í Stykkishólmi í kvöld en Snæfellingar skutust framúr gestum sínum í öðrum leikhluta sem Snæfell vann 18-3. Lokatölur reyndust svo 60-46 eins og áður greinir.



