HomeFréttirHelena og Góðu Englarnir í vanda

Helena og Góðu Englarnir í vanda

 Good Angels Kosice, lið Helenu Sverrisdóttur, tapaði í dag fyrir UMMC Ekaterinburg, 61-55, í Euroleague kvenna.  Liðin eigast við í annari umferð keppninar þar sem fyrra liðið til að vinna tvo leiki fer áfram.  Good Angels eiga heimaleik á föstudaginn og geta þá knúið fram oddaleik.  Helena lét lítið fyrir sér fara í leiknum en henni tókst aðeins að skora 3 stig á þeim 22 mínútum sem hún spilaði.  
 
UMMC Ekaterinburg, sem er frá Rússlandi, hefur endað í 3. sæti í Euroleague kvenna síðastliðin fjögur ár og það verður því ærið verkefni fyrir Góðu Englana að vinna næstu tvo leiki og fara áfram.  Hægt er að fylgjast með framgangi keppninnar hér
Fréttir
- Auglýsing -