Í vetur hafa Fjölnir og Valur verið að spila mjög jafna leiki sem og varð raunin í gær þegar liðin mættust í Dalhúsum. Leikurinn var hnífjafn mest allan tíman en alltaf virtist Valur hafa betri baráttuvilja en Fjölnir og gaf það línurnar í leiknum.
Signý Hermannsdóttir var í byrjunarliði Vals og var fljót að næla sér í tvær villur og spilaði svosem ekki mikið eftir það. Leikur Vals var hraður og spiluðu þær góða vörn á Fjölni og voru miklu betri í að stíga út menn og ná fráköstum, Katina Mandylaris var sú eina sem var virkilega að berjast í fráköstum að viti hjá Fjölni, og Britney Jones hélt Fjölni inni í leiknum sóknarlega og kom Fjölni yfir með þriggjastiga körfu í stöðunni 29-28 .
Í hálfleik var staðan 39 – 42 fyrir Val og var spennuleikur í vændum þangað til í byrjun fjórða leikhluta en þá tapar Fjölnir fimm boltum á stuttum tíma og Valur nýtti hvert einasta tækifæri og skoraði úr því og þar kom munurinn sem varð til þess að spennuleikur varð að sigri Vals, 67-79. Kristrún var í góðum gír í þessum leik og virðist það skipta miklu máli fyrir Val að hún sé í gangi og skili stigum á töfluna.
Það var ekki að sjá að Fjölnisstúlkur væru að spila eins og lið sem vildi rífa sig upp úr botninum, mikið baráttuleysi og vantaði allan kraft í liðið sem þær hafa sínt í nokkrum leikjum í vetur, þær geta spilað mikið betur en þetta og verður hver og einn að hugsa sinn gang fyrir næsta leik, en Valur nældi í tvö rándýr stig þarna í gær sem gerir þeim kleyft að halda voninni á lífi í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni.
Heildarskor:
Fjölnir: Brittney Jones 28/4 fráköst/7 stoðsendingar, Katina Mandylaris 13/15 fráköst, Jessica Bradley 10/9 fráköst/3 varin skot, Birna Eiríksdóttir 6, Bergdís Ragnarsdóttir 4/5 fráköst/3 varin skot, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 4/4 fráköst, Erla Sif Kristinsdóttir 2, Dagbjört Helga Eiríksdóttir 0, Erna María Sveinsdóttir 0, Eva María Emilsdóttir 0, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 0, Margrét Helga Hagbarðsdóttir 0.
Valur: Melissa Leichlitner 22, Kristrún Sigurjónsdóttir 21, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 11, María Ben Erlingsdóttir 9, Lacey Katrice Simpson 8/19 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Þórunn Bjarnadóttir 4/6 fráköst, Signý Hermannsdóttir 2, Guðbjörg Sverrisdóttir 2, Ragnheiður Benónísdóttir 0, María Björnsdóttir 0, Hallveig Jónsdóttir 0, Berglind Karen Ingvarsdóttir 0.
Umfjöllun/ Karl West



