Í nótt fóru fram síðustu leikirnir í NBA deildinni fyrir Stjörnuleikshelgina þar sem Miami Heat vann sinn áttunda deildarleik í röð er þeir snöggkældu niður New York Knicks og nýjustu stjörnu þeirra Jeremy Lin. Lokatölur í Miami voru 102-88 Heat í vil þar sem þrenningin Wade, James og Bosh gerðu 67 af 102 stigum Heat.
Chris Bosh var stigahæstur í liði Heat með 25 stig og 8 fráköst, Dwyane Wade bætti við 22 stigum, 5 fráköstum og 5 stoðsendingum og þá var LeBron James með 20 stig, 9 fráköst og 8 stoðsendingar. Hjá Knicks var Carmelo Anthony með 19 stig og 7 fráköst en Jeremy Lin gerði 8 stig í leiknum, tók 6 fráköst en tapaði 8 boltum. Lin setti aðeins niður 1 af 11 teigskotum sínum, brenndi af báðum þristunum en setti niður öll sex vítin sín.
Önnur úrslit næturinnar:
Atlanta 83-78 Orlando
Denver 99-114 San Antonio
Oklahoma 100-85 LA Lakers



