HomeFréttirLeikir dagsins: Sautjándu umferð lýkur í kvöld

Leikir dagsins: Sautjándu umferð lýkur í kvöld

Þrír leikir fara fram í Iceland Express deild karla í kvöld en þeir marka lok sautjándu umferðar. Í gær fóru fram þrír slagir þar sem m.a. þurfti að tvíframlengja í Schenkerhöllinni þegar Grindvíkingar styrktu stöðu sína á toppnum. Í kvöld verður viðureign KR og Fjölnis í beinni netútsendingu á KR TV.
Leikir kvöldsins í IEX-deild karla, 19:15:
 
Þór Þorlákshöfn-Keflavík
KR-Fjölnir
Valur-Tindastóll
 
Staðan í Iceland Express deild karla
1. Grindavík 16/1 32
2. Stjarnan 11/6 22
3. Keflavík 11/5 22
4. KR 10/6 20
5. Þór Þorlákshöfn 10/6 20
6. Snæfell 9/8 18
7. Njarðvík 8/9 16
8. Fjölnir 7/9 14
9. Tindastóll 7/9 14
10. ÍR 6/11 12
11. Haukar 4/13 8
12. Valur 0/16 0
 
 
Þá eru fjórir leikir á dagskrá í 1. deild karla í kvöld en eins og áður hefur komið fram hefur KFÍ unnið sigur í 1. deild og leikur því í úrvalsdeild karla á næsta tímabili. Allir leikirnir í 1. deild karla í kvöld hefjast kl. 19:15.
 
Ármann-Hamar
Þór Akureyri-Skallagrímur
ÍG-Höttur
ÍA-FSu
 
Stefnt er að því að sýna beint frá slag Þórs og Skallagríms, fylgist með á www.thorsport.is í dag
 
Einn leikur er í 1. deild kvenna en þá eigast við KFÍ og Stjarnan kl. 18.30 á Ísafirði.
Fréttir
- Auglýsing -