Keflvíkingar minnkuðu muninn áfram í byrjun annars leikhluta og höfðu náð muninum niður í tvö stig, 14-12 þegar Grindavík tók leikhlé. Þá tóku Grindvíkingar við sér og skoruðu 9 stig gegn næstu 2 stigum Keflavíkur og breyttu stöðunni í 23-14. Hilmar Kristjánsson og Aðalsteinn Pétursson áttu flotta spretti fyrir Grindvíkinga en Hilmir setti flottan þrist og varði svo skot í næstu sókn. Grindvíkingar náðu sínu mesta forskoti fram að því í leiknum á lokamínútu fyrri hálfleiks í stöðuni 31-21. Það var hins vegar Arnþór Ingvason sem átti síðasta orðið fyrir Keflavík í fyrri hálfleik og minnkaði muninn niður í 8 stig, 31-23.
Stigahæstur í hálfleik í liði Grindavíkur var Aðalsteinn Pétursson með 12 stig en næstir voru Hilmir Kristjánsson með 9 stig og 5 fráköst og Aron Friðriksson með 5 stig og 3 stoðsendingar. Í liði Keflavíkur voru það Guðmundur Ólafsson og Arnþór Ingvason með 8 stig hvor en Arnþór bætti einnig við 5 fráköstum. Næsti maður á blað hjá Kelfavík var Tryggvi Ólafsson með 3 stig og 2 stoðsendingar.
Grindvíkingar gáfu ekkert eftir í byrjun seinni hálfleiks og með Hilmir í broddi fylkingar héldu þeir uppteknum hætti. Keflavík tók leikhlé þegar þriðji leikhluti var hálfnaður og munurinn á liðunum 10 stig, 38-28. Grindvíkingar náðu mest 13 stiga mun í stöðunni 42-29. Keflavík hleypti þeim þó ekki lengra frá sér en það og unnu sig hægt og rólega aftur inní leikinn. Guðmundur Ólafsson átti flottan kafla fyrir Keflavík en hann skoraði 7 stig í þriðja leikhluta og hélt sínum mönnum inní leiknum. Þegar flautað var til loka þriðja leikhluta munaði 9 stigum á liðunum, 44-35.
Það voru hins vegar Keflvíkingar sem mættu betur stemmdir til leiks í fjórða leikhluta og þegar þrjár mínútur voru liðnar höfðu þeir minnkað muninn niður í 5 stig, 41-46. Keflvíkingar komust þó ekki nær en það þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir. Hilmir Kristjánsson reyndist þeim of sterkur á lokakaflanum en hann tók af skarið fyrir Grindvíkinga þegar á reyndi. Grindavík hafði í lokin 6 stiga sigur, 60-54 og eru því vel að bikarmeistaratitlinum komnir.
karfan.is óskar Grindavík til hamingju með bikarmeistaratitilinn í 9. flokki karla
Mynd: [email protected]
Umfjöllun: [email protected]



