Gatorade leikmaður 17. umferðar ætti líkast til ekki að koma neinum á óvart. 54 stig og 11 fráköst og 64 framlagsstig skila Travis Holmes kippu af Gatorade eftir þessa umferð. Travis fór fyrir lemstruðu liði UMFN gegn ÍR sl. fimmtudag. Á skýrslu voru aðeins 9 leikmenn og því ekki margir sem spáðu Njarðvíkingum miklu út úr þeim leik. En leikmenn UMFN trúðu á verkefnið og spiluðu feikilega vel.
Travis sagði í samtali við Karfan.is að hann væri ánægður með sinn leik og að vonandi geti hann haldið áfram á sömu braut. Holmes og félagar leika erfiðan útileik gegn Stjörnunni í dag.



