HomeFréttirKeflavík sá aldrei til sólar að Hlíðarenda

Keflavík sá aldrei til sólar að Hlíðarenda

Valur skellti Keflavík 88-53 í Vodafonehöllinni í kvöld og halda því lífi í baráttu sinni um sæti í úrslitakeppninni nú þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir í Iceland Express deild kvenna. Hannes Birgir Hjálmarsson var að Hlíðarenda í kvöld og fylgdist grannt með gangi mála.
Keflavík byrjar í svæðisvörn sem Valsmenn eiga auðvelt með að leysa og skora fyrstu fjórar körfur leiksins og komast í 9-0 áður en Keflavík kemst á blað. Valsliðið leysir vörn Keflavíkur auðveldlega fyrstu tvær og hálfa mínútuna og Keflavík tekur leikhlé þegar staðan er orðin 14-4 fyrir Val og Valsliðið ekki klikkað á skoti! Bæði lið pressa allan völlinn og spila hraðan sóknarleik en ótrúleg hittni Valskvenna skilar þeim 19-8 forystu þegar sex mínútur eru eftir og Keflavík skiptir yfir í maður á mann vörn. Sóknarleikur Vals er að ganga fullkomlega upp en Keflavík gengur illa gegn sterkri vörn Vals. Valsliðið nær góðri forystu 27-12 þegar rúm mínúta er til loka fjórðungsins eftir að Melissa Leichlitner setur góða körfu og víti að auki. Valsliðið hefur leikið nánast fullkominn fyrsta fjórðung og staðan 29-14 í lok hans. Keflavík virðist hafa verið óviðbúið frábærum leik Valskvenna sem hafa leikið við hvern sinn fingur. Melissa Leichlitner leiðir Valsliðið með 13 stig en Jaleesa Butler og Sara Rún Hinriksdóttir eru stigahæstar í Keflavíkurliðins með 4 stig hvor.
 
Liðin skora aðeins sitthvora körfuna fyrstu mínúturnar í öðrum leikhluta en Valsliðið tekur svo kipp og skorar fjórar körfur í röð og staðan skyndilega orðin 39-17, 22 stiga munur og annar fjórðungur ekki hálfnaður! Keflavík gengur illa að leysa vörn Valsmanna og hittnin er ekki góð þegar það tekst og liðið aðeins skorað 5 stig í fjórðungnum  þegar 5 mínútur eru liðnar. Keflavík klórar aðeins í bakkann en Valsiðið skorar jafnharðan og þegar 2 mínútur eru eftir er staðan 47-24. Melissa klárar hálfleikinn með góðu gegnumbroti og körfu og fjórðungnum lýkur með verðskuldaðri forystu Vals 51-26! Valsliðið hefur virkað mun sterkara, mikið um feila hjá Keflavíkurliðinu sem hefur ekki náð að sína sitt rétta andlit. Melissa stigahææst Valskvenna með 19 stig, Kristrún 8 stig, 4 fráköst og 3 stoðsendingar og Guðbjörg 8 stiig 4 stoðsendingar og 4 fráköst. Jaleesa Butler leiðir enn Keflavíkurliðið með 7 stig og 9 fráköst Sara Rún 7 stig og Pálína Gunnlaugsdóttir 6 stig, 2 fráköst og 2 stoðsendingar.
 
Pálína hefur seinni hálfleikinn með tveimur þristum fyrir Keflavík og staðan 51-32 eftir fyrstu mínútuna. Valsliðið tapar boltanum eðs klikkar á skoti í fyrstu sjö sóknunum sínum en Keflavík byrjar seinni hálfleik á 9-0 áhlaupi og Valur tekur leikhlé eftir 3 mínútur í stöðunni 51-34. Leslie Simpson nær sóknarfrákasti og skorar fyrstu stig Vals i seinni hálfleik þegar 3 1/2 mínúta er liðin. Svæðisvörn Keflvíkinga er að ganga upp í seinni hálfleik og Valsliðið aðeins skorað 4 stig á fyrstu 7 mínútum seinni hálfleiks. Sóknin hjá Keflavík er mun betri en í fyrri hálfleik en munurinn er 14 stig þegar þrjár mínútur eru eftir 55-41. Melissa keyrir í gegnum vörnina hjá Keflavík og Helga Hallgrímsdóttir fær sína fjórðu villu. Valsliðið tekur smá kipp í lok fjórðungsins og Melissa setur flautukörfu í blálokin og lagar aðeins stöðuna fyrir Val 64-45, en Keflavík vann fjórðunginn 11-19. Pálína átti stórgóðan fjórðung og er komin með 17 stig fyrir Keflavík en Melissa leiðir enn Val með 23 stig, Kristrún með 13 og Leslie Simpson er komin með 10 stig og 13 fráköst.
 
Valsliðið byrjar betur í lokafjórðungnum og skorar 8-2 á fyrstu þremur og hálfri mínútunni og staðan 72-47 fyrir Val og ekkert sem bendir til þess að sigur Vals sem sé í hættu. Berglind Ingvarsdóttir smellir einum þristi og Keflavík tapar boltanum í næstu tveimur sóknum og virðist sem liðið sé búið að sætta sig við tap. Liðin skiptast á að skora þannig að forysta Vals helst í rúmlega 20 stigum. Berglind skellir öðrum þristi og eykur forystuna í 80-51, þrjár mínútur eftir og 29 stiga munur. Gústi þjálfari Vals  "tæmir bekkinn" þegar 2:30 eru eftir og Falur þjálfari Keflavíkur gerir það líka. Valsliðið eykur muninn enn og leikurinn endar með öruggum sigri Vals 88-53.
 
Valsliðið var vel að sigrinum komið og leiddi frá upphafi til enda. Keflavíkurliðið náði aldrei að spila sinn leik og því varð aldrei um spennandi leik að ræða. Melissa Leichlitner leiddi Valsliðið til sigurs með 26 stig, Kristrún Sigurjónsdóttir  var með 15 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar, Leslie Simpson 12 stig og 17 fráköst og 4 stoðsendingar og Guðbjörg Sverrisdóttir 10 stig 7 fráköst og 5 stoðsendingar.  Hjá Keflavík var Pálína Gunnlaugsdóttir með 21 stig, 7 fráköst og 3 stoðsendingar, Jareesa Butler 11 stig 15 fráköst og 2 stoðsendingar.
 
Umfjöllun/ Hannes Birgir Hjálmarsson  
Fréttir
- Auglýsing -