Tindastóll og Haukar mættustu í Síkinu á Sauðárkróki í gærkvöldi. Stólarnir í leit að öruggu sæti í úrslitakeppninni, en gestunum vantaði sárlega stig til að eygja von um að halda sér í deildinni.
Haukar gátu ekki teflt fram Chavis Holmes þar sem hann var ekki kominn með leikheimild, en hjá Tindastóli vantaði Svavar Atla Birgisson sem lá heima með flensu.
Haukar skoruðu fyrstu tvær körfu leiksins, en síðan jöfnuðu Stólarnir og eftir það var mikið jafnræði með liðunum. Undir lok fyrsta leikhluta hrökk Haukur Óskarsson í gang fyrir utan þriggjastiga línuna og smellti niður þremur þristum í röð fyrir gestina, en Stólarnir létu það ekki trufla sig um of og leiddu með einu stigi 22 – 21 eftir fyrsta fjórðung.
Áfram hélt sama baráttan í öðrum leikhluta. Liðin hertu aðeins á vörninni og sóknarleikurinn gekk ekki jafn vel að sama skapi. Enda fór svo að aftur munaði einu stig í hálfleik Tindastól í vil, 38 – 37. Hjá Stólunum var Maurice Miller kominn með 11 stig í hálfleik, en hinu megin var Christopher Smith með 13 stig og 8 fráköst.
Lítið var skorað framan af síðari hálfleik, þó voru gestirnir aðeins duglegri og eftir sex og hálfa mínútu var staðan 42 – 47 fyrir Hauka og heimamenn aðeins búnir að skora fjögur stig á þeim tíma. Þá loksins losnaði um sóknarleik Tindastólsmanna og þeir náðu að rétta sinn hlut síðustu þrjár mínúturnar og að loknum þremur leikhlutum var staðan jöfn, 52 – 52.
Stólarnir virtust ætla að slíta sig frá Haukum í byrjun fjórða leikhluta með fyrstu 5 stigum hans, en gestirnir voru ekki á því og náðu að jafna 59 – 59 og aftur 61 – 61. Stólarnir voru að hitta afar illa fyrir utan þriggja stiga línuna fram að þessu þrátt fyrir nokkuð margar tilraunir.
Þegar þarna var komið í leiknum vaknaði loksins Igor Tratnik fyrir heimamenn, reif niður hvert sóknarfrákastið af öðru og endaði síðan syrpuna með troðslu og kom Tindastóli í 66 – 61. Rúm mínúta eftir og útlitið dökkt fyrir gestina. Örn Sigurðarson lagaði stöðuna með sniðskoti og víti að auki og munurinn því aðeins tvö stig. Stólarnir létu Smith verja frá sér í næstu sókn, en Haukar náðu ekki að nýta sér það í framhaldinu og misstu boltann þegar rúmar 6 sekúndur voru eftir. Þeir brutu síðan tvisvar á Maurice Miller til að koma honum á vítalínuna, sem hitti úr báðum vítunum og muninum í fjögur stig 68 – 64. Það gátu gestirnir ekki brúað á þeim stutta tíma sem eftir var og heimamenn fögnuðu því sigri og tveimur dýrmætum stigum.
Bestur hjá Tindastóli var fyrirliðinn Helgi Rafn Viggósson með 19 stig og 12 fráköst. Þá komu Þröstur og Helgi Freyr sterkir inn af bekknum. Hittni Tindastóls var þó ekki góð í kvöld, aðeins 2 af 23 þriggjastiga skotum fóru ofan í og þá var vítanýtingin líka slök eða 53%.
Hinu megin var Christopher Smith öflugastur með 20 stig og 11 fráköst. Síðan áttu Helgi Björn Einarsson og Joseph-Pauline ágætis leik.
Haukar eiga Val og ÍR í tveimur næstu leikjum og verða að gjöra svo vel að vinna þá ætli þeir sér að bjarga sér frá falli. Þeir hafa alveg lið til þess sérstaklega ef Chavis Holmes kemur sterkur til leiks. Stólarnir voru ekki að spila vel í kvöld, en seigluðust einhvern veginn í gegnum þetta. Bikarúrslitaleikurinn virðist sitja enn í mönnum, en til að vera öruggir um sæti í úrslitakeppninni þarf liðið að hressast og taka einn til tvo sigra í viðbót.
Dómarar voru þeir Jón Guðmundsson og Georg Andersen.
Byrjunarlið Tindastóls: Curtis, Maurice, Rikki, Igor og Helgi Rafn.
Byrjunarlið Hauka: Christopher, Haukur, Alik, Helgi og Emil.
Það var 11 sinnum jafnt í leiknum og liðin skiptust 13 sinnum á um forystu.
Þriggjastiga nýting Tindastóls var aðeins 9%.
Það voru 15 villur á hvort lið.
Texti: JS
Mynd: Úr safni/ Helgi Rafn Viggósson var atkvæðamestur í liði Tindastóls í gær



