Í dag hefst 25. umferð í Iceland Express deild kvenna og eru tveir leikir á boðstólunum. Fyrri leikur dagsins er viðureign Snæfells og Hamars í Iceland Express deild kvenna og hefst hann kl. 15:00 í Stykkishólmi.
Fjölnir og KR mætast svo í Dalhúsum kl. 16:30. Fjöldi leikja er á dagskránni í dag ásamt Nettó mótinu í Reykjanesbæ en þangað er fólk hvatt til að fjölmenna og fylgjast með framtíðarleikmönnum Íslands leika listir sínar.
Staðan í IEX deild kvenna
| Nr. | Lið | U/T | Stig |
|---|---|---|---|
| 1. | Keflavík | 19/5 | 38 |
| 2. | Njarðvík | 18/6 | 36 |
| 3. | Snæfell | 13/11 | 26 |
| 4. | Haukar | 12/12 | 24 |
| 5. | KR | 12/12 | 24 |
| 6. | Valur | 10/14 | 20 |
| 7. | Hamar | 6/18 | 12 |
| 8. | Fjölnir | 6/18 | 12 |
Mynd/ Fanney Lind Guðmundsdóttir og Hvergerðingar mæta Snæfell í Stykkishólmi í dag.



