HomeFréttirLiðþófinn rifinn hjá Öldu - sér til eftir upphitun hvort hún verði...

Liðþófinn rifinn hjá Öldu – sér til eftir upphitun hvort hún verði með

Alda Leif Jónsdóttir er með rifinn liðþófa og framhaldið er óráðið, hvort þess öflugi leikmaður Snæfells fari strax í aðgerð eða klári tímabilið á meiðslunum mun koma í ljós á næstunni þegar hún kemst undir læknishendur vegna meiðslanna.
Snæfell tekur á móti Hamri í Stykkishólmi kl. 15:00 í dag í Iceland Express deild kvenna og ætlar Alda að freista þess að vera með: ,,Ég ætla að sjá til eftir upphitun á eftir hvort ég verði með en miðað við síðustu daga þá finnst mér það ólíklegt," sagði Alda í samtali við Karfan.is í dag.
 
Það er því óhætt að segja að meiðslin hafi höggvið stór skörð í Snæfellsliðið þetta tímabilið því Berglind Gunnarsdóttir er nýkomin á ról á nýjan leik. Hildur Sigurðardóttir lék meidd á ökkla í síðustu umferð gegn KR og þá spilaði Alda ekki með vegna meiðslanna.
 
 
  
Fréttir
- Auglýsing -