HomeFréttirFjölnir úr fallsæti með sigri á KR

Fjölnir úr fallsæti með sigri á KR

Fjölnir fékk KR í Dalhúsin í dag í Iceland Express deild kvenna og má segja að spennustigið hafi verið mjög hátt hjá báðum liðum, bæði liðin byrjuðu hægt og voru sóknir beggja liða mjög ryðgaðar og stífar, lítið boltaflæði og erfið skot sem voru ekki að detta en leikhlutinn kláraðist mjög jafn.
 
Í öðrum leikhluta fór KR í gang og komust 14 stigum yfir á tíma og var 9 stiga munur í hálfleik en eftir spilamensku Fjölnis á móti Haukum var vitað að þær ættu mun meira inni en það sem þær voru að skila í þessum fyrri hálfleik. Vörnin var fín en Fjölnisstúlkur voru ekki að henda sér í frákastabolta og fékk KR oft annan séns sem þær nýttu sér.
 
Fjölnir keyrði upp vörnina sína og voru allt annað lið í seinni hluta leiksins, unnu upp 12-0 álaup og leikurinn varð jafn og við það kom smá stress í KR og fór sóknin oft í vitleysu hjá þeim.
 
KR náði að minnkaði munninn í eitt stig 59-58, Finnur öskraði að þær ættu að taka þrist en þær heyrðu ekki kall hans og settu tveggja stiga körfu þegar sex sekúndur voru eftir og eftir innkast brutu KR strax á Fjölniskonum, 4,2 eftir á klukkuni og  Brittney Jones fór á vítalínuna en hitti úr hvorugu skotinu.
 
KR fékk því boltann og keyrði Margrét Kara Sturludóttir upp og reyndi skot til að tryggja liðinu sigur með þriggja stiga körfu á lokasekúndunni en skotið fór í spjaldið og af og Fjölnir vann magnaðann sigurá KR efir hörku leik.
 
 
Umfjöllun/ Karl West  
Fréttir
- Auglýsing -