HomeFréttirLeikir dagsins: Rimma í Reykjanesbæ

Leikir dagsins: Rimma í Reykjanesbæ

Nettómótið verður ekki það eina á dagskránni í Reykjanesbæ í dag því kl. 19:15 mætast erkifjendurnir Keflavík og Njarðvík í Iceland Express deild kvenna. Keflavík trónir á toppnum með 38 stig en með sigri geta bikarmeistarar Njarðvíkur jafnað Keflavík á toppi deildarinnar og gert lokasprettinn um deildarmeistaratitilinn æsispennandi.
Þá mætast Valur og Haukar í Vodafonehöllinni kl. 19:15 en Valskonur hafa sýnt upp á síðkastið að þær ætli sér í úrslitakeppnina. Ef það á að verða að veruleika kemur ekkert annað til greina en sigur gegn Haukum sem nú hafa tapað síðustu þremur deildarleikjum sínum í röð.
 
 
Mynd/ Bikarmeistarar UMFN mæta í Toyota-höllina í kvöld  
Fréttir
- Auglýsing -