Melissa Leichlitner meiddist í viðureign Vals og Hauka í síðustu umferð Iceland Express deildar kvenna og lék ekkert í síðari hálfleik. Það aftraði Valskonum þó ekki frá því að landa sigri og sínum þriðja deildarsigri í röð. Á morgun mætast KR og Valur í afar mikilvægum leik og sagði Ágúst Björgvinsson þjálfari Vals að ákveðið yrði á morgun hvort Melissa spili leikinn.
,,Melissa fór í sjúkraþjálfun í dag og mun fara aftur á morgun. Bati hennar er betri en við þorðum að vona en það verður endanlega ákveðið á morgun hvort hún spili gegn KR," sagði Ágúst.
Melissa lék í 13 mínútur gegn KR og skoraði 10 stig og gaf 3 stoðsendingar en hún hefur gert 17,8 stig og gefið 5,1 stoðsendingu með Val þennan veturinn.



