HomeFréttirÞrettán heimasigrar í röð hjá Oklahoma - Bulls á skriði

Þrettán heimasigrar í röð hjá Oklahoma – Bulls á skriði

Níu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Oklahoma City Thunder unnu sinn þrettánda heimaleik í röð og Chicago Bulls lönduðu sínum sjöunda deildarsigri í röð.
 
Úrslit næturinnar:
 
Toronto 88-92 Orlando
Dwight Howard gerði 36 stig og tók 13 fráköst í liði Orlando en hjá Toronto var DeMar DeRozan með 23 stig.
 
Washington 100-120 Golden State
Sex leikmenn Golden State gerðu 10 stig eða meira í leiknum og þeirra stigahæstur var Monta Ellis með 25 stig og 8 stoðsendingar. Nick Young gerði 25 stig hjá Wizards og leikstjórnandinn John Wall bætti við 20 stigum og 14 stoðsendingum.
 
Cleveland 100-109 Utah
Miðherjinn Al Jefferson fór mikinn í liði Utah með 25 stig, 13 fráköst og 7 stoðsendingar. Hjá Cleveland voru þeir Antawn Jamison og nýliðinn Kyrie Irving báðir með 22 stig.
 
Chicago 92-72 Indiana
Luol Deng gerði 20 stig í liði Bulls go Joakim Noah bætti við 9 stigum og 17 fráköstum. Derrick Rose var í rólegri kantinum með 13 stig og 9 stoðsendingar. Hjá Indiana gerði Paul George 21 stig.
 
Milwaukee 97-93 Philadelphia
Louis Williams kom með 26 stig af bekknum hjá Philadelphia en Brandon Jennings var stigahæstur í sigurliði Bucks með 33 stig og 7 stoðsendingar.
 
Oklahoma 95-91 Dallas
Russell Westbrook skoraði 24 stig og tók 6 fráköst í liði Oklahoma og Kevin Durant bætti við 22 stigum og 7 fráköstum. Hjá Dallas var Dirk Nowitzki með 27 stig og 5 fráköst.
 
Minnesota 95-94 LA Clippers
Kevin Love mætti með skrímslatvennu eins og honum einum er lagið, 39 stig og 17 fráköst en Blake Griffin splæsti líka í tvennu fyrir Clippers með 26 stig og 12 fráköst. Chris Paul gat jafnað leikinn með þremur vítaskotum, tvö fyrstu fóru niður en það þriðja rataði ekki rétta leið og Timberwolves fögnuðu því sigri þar sem Spánverjinn Ricky Rubio kláraði leikinn á vítalínunni.
 
Denver 119-116 Sacramento
Arron Afflalo setti 32 stig fyrir Denver en tveir voru jafnir með 27 stig hjá Kings, þeir Marcus Thornton og Tyreke Evans.
 
Portland 86-74 New Orleans
Marco Belinelli gerði 18 stig í liði New Orleans en hjá Portland var Frakkinn Nicolas Batum með 19 stig og 3 fráköst. Evrópustemmari í þessum leik.
 
Fréttir
- Auglýsing -