HomeFréttirÚrslit kvöldsins: KR upp í fjórða sætið eftir rafmagnaðan sigur á Val

Úrslit kvöldsins: KR upp í fjórða sætið eftir rafmagnaðan sigur á Val

Einn leikur fór fram í Iceland Express deild kvenna í kvöld þar sem KR hafði betur gegn Val í baráttunni um borgina. Lokatölur 78-71 KR í vil eftir framlengdan leik en staðan var 65-65 eftir venjulegan leiktíma. Með sigrinum batt KR enda á fimm leikja taphrinu sína og sömuleiðis stöðvuðu þær sigurgöngu Vals.
Heildarskor leiksins:
 
KR-Valur 78-71 (16-15, 19-21, 14-14, 16-15, 13-6)
 
KR: Erica Prosser 28/5 fráköst/6 stoðsendingar, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 19/5 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 14, Margrét Kara Sturludóttir 12/9 fráköst, Anna María Ævarsdóttir 5/4 fráköst, Sólrún Sæmundsdóttir 0, Helga Hrund Friðriksdóttir 0, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 0/6 fráköst, Kristbjörg Pálsdóttir 0, Ragnhildur Arna Kristinsdóttir 0, Rannveig Ólafsdóttir 0, Perla Jóhannsdóttir 0.
 
Valur: Lacey Katrice Simpson 19/10 fráköst/5 stolnir/6 varin skot, Þórunn Bjarnadóttir 15, María Ben Erlingsdóttir 11/10 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 8/7 fráköst, Signý Hermannsdóttir 6, Kristrún Sigurjónsdóttir 6/5 fráköst, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 4, Hallveig Jónsdóttir 2, Ragnheiður Benónísdóttir 0, María Björnsdóttir 0, Berglind Karen Ingvarsdóttir 0.
 
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Jakob Árni Ísleifsson
 
Nánar síðar…
 
  
Fréttir
- Auglýsing -